Fara beint í efnið

18. júní 2019

Hveragerðisbær gerist Heilsueflandi samfélag

Hveragerðisbær varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi (HSAM) þann 14. júní sl. þegar Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis í Sundlauginni Laugaskarði.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Hveragerðisbær varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi (HSAM) þann 14. júní sl. þegar Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis í Sundlauginni Laugaskarði. Viðstaddir voru fulltrúar bæjarfélagsins og sundlaugargestir á öllum aldri.

Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að vinna með markvissum hætti að því að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Í slíku samfélagi er heilsa og líðan íbúa í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum.

Með innleiðingu Heilsueflandi samfélags vinna sveitarfélög einnig að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Hveragerðisbær er 26. sveitarfélagið sem gerist Heilsueflandi samfélag og búa nú rúmlega 87% landsmanna í slíku samfélagi.

Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri Heilsueflandi samfélags