Fara beint í efnið

28. febrúar 2020

Fyrsta tilfelli COVID-19 kórónaveiru greinist á Íslandi

Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið færður í einangrun á Landspítala eftir að sýni úr honum reyndist jákvætt fyrir COVID-19 sýkingu.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið færður í einangrun á Landspítala eftir að sýni úr honum reyndist jákvætt fyrir nýrri kórónaveiru (COVID-19). Maðurinn er ekki alvarlega veikur en sýnir dæmigerð einkenni COVID-19 sjúkdóms (hósti, hiti og beinverkir). Þetta er fyrsta staðfesta tilfellið hér á landi.

Í ljósi þessa mun ríkislögreglustjóri í samráði við sóttvarnalækni virkja hættustig almannavarna. Er þetta gert bæði vegna þess að ekkert lát er á hópsýkingu af völdum veirunnar ytra, þá sérstaklega í Evrópu, og að fyrsta tilfellið hefur nú verið staðfest hér á landi.

Maðurinn sem greindist var nýverið staddur á Norður-Ítalíu utan skilgreinds hættusvæðis fyrir veiruna. Unnið er að rakningu smitleiða en markmið þeirra vinnu er að varpa ljósi á það hverjir gætu verið útsettir vegna þessa staðfesta smits.

Á blaðamannafundi Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og sóttvarnalæknis sem haldinn var fyrr í dag, sátu Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra fyrir svörum ásamt Ölmu D. Möller landlækni og Guðlaugu Rakel Guðjónsdóttur, framkvæmdastjóra flæðisviðs Landspítala.

Einstaklingar sem finna fyrir einkennum og hafa mögulega verið útsettir fyrir smiti vegna t.d. ferðalaga eru hvattir til að hringja í síma Læknavaktarinnar 1700 (fyrir erlend símanúmer: +354 544-4113) til að fá leiðbeiningar. Þeir sem hafa verið í nánu samneyti við einstaklinga með staðfesta eða líklega sýkingu eru settir í sóttkví og hið sama á við um þá sem ferðast hafa á undanförnum dögum til skilgreindra áhættusvæða. Ítarlegar upplýsingar um hina nýju kórónaveiru er að finna á vef embættis landlæknis.

Sóttvarnalæknir