Fara beint í efnið

1. desember 2021

Fréttatilkynning vegna hlutaúttektar á HSS

Samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007 ber embætti landlæknis að fylgjast með gæðum og öryggi heilbrigðisþjónustunnar og stuðla að umbótum. Hlutaúttekt á legudeild D á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) var unnin að frumkvæði embættis landlæknis. Tilefni úttektarinnar var rannsókn embættisins á kvörtun sem barst síðla árs 2019 og leiddi í ljós alvarlega annmarka á þjónustu.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007 ber embætti landlæknis að fylgjast með gæðum og öryggi heilbrigðisþjónustunnar og stuðla að umbótum.

Hlutaúttekt á legudeild D á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) var unnin að frumkvæði embættis landlæknis. Tilefni úttektarinnar var rannsókn embættisins á kvörtun sem barst síðla árs 2019 og leiddi í ljós alvarlega annmarka á þjónustu. Úttektin var gerð í september 2021 og tók til vettvangsskoðunar, viðtala við starfsfólk, stjórnendur og sjúklinga ásamt skoðunar á ferlum og fyrirliggjandi gögnum um starfsemi, alvarleg atvik, ábendingar, kvartanir og fleira.

Embættið þakkar stjórnendum, starfsfólki og sjúklingum HSS góða samvinnu við úttektina.

Umbótastarf er þegar hafið á HSS og hefur starfsumhverfi legudeildar D á HSS tekið jákvæðum breytingum á síðustu mánuðum. Hins vegar er ljóst að ýmislegt þarf að bæta. Ábendingar embættis landlæknis taka meðal annars til eftirfarandi:

  1. Fjölga þarf læknum til að stuðla að stöðugri mönnun og samfelldri þjónustu.

  2. Setja þarf fram skýr markmið og skýra stefnumörkun fyrir starfsemi deildarinnar. Tryggja þarf að búnaður sé í samræmi við það þjónustustig sem ætlað er að uppfylla á deildinni.

  3. Efla þarf þekkingu og þjálfun starfsmanna til að sinna líknar- og lífslokameðferð samkvæmt nýjustu þekkingu hverju sinni t.d. með námskeiðum og stuðningi frá líknarráðgjafateymi Land­spítala.

  4. Efla þarf innra eftirlit með heilbrigðisþjónustu.

  5. Efla þarf samvinnu og samskipti við sjúklinga og aðstandendur þeirra og koma upp ferli þar sem ábendingar aðstandenda eru teknar til meðferðar án tafar.

  6. Styrkja þarf umbóta- og gæðastarf með markvissum hætti með því að setja fram gæðastefnu og tímasetta aðgerðaráætlun og fylgja henni eftir.

Ljóst er að aukin meðvitund og áhersla er á gæði líknar- og lífslokameðferðar eftir atvik sem urðu á deildinni. Starfsfólk er ánægt með þá fræðslu sem það hefur fengið innan stofnunarinnar um líknar- og lífslokameðferð en brýnt er að efla þá þekkingu og þjálfun enn frekar.

Embætti landlæknis mun fylgja framangreindum ábendingum eftir. HSS mun senda embættinu umbótaáætlun í janúar 2022 og framgangsskýrslu í maí 2022 og í nóvember 2022.

Nánari upplýsingar veitir Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis kjartanh@landlaeknir.is

Alma D. Möller landlæknir