Fara beint í efnið

19. júní 2018

Fjallabyggð gerist heilsueflandi samfélag

Fjallabyggð varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi þann 11. júní sl. þegar Alma D. Möller, landlæknir og Gunnar Birgisson, bæjarstjóri skrifuðu undir samning þess efnis.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Fjallabyggð varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi þann 11. júní sl. þegar Alma D. Möller, landlæknir og Gunnar Birgisson, bæjarstjóri skrifuðu undir samning þess efnis.

Athöfnin fór fram í Tjarnarborg á Ólafsfirði og var vel sótt. Áður en undirskrift fór fram fluttu landlæknir og Ríkey Sigurbjörnsdóttir, deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála hjá Fjallabyggð og tengiliður Fjallabyggðar fyrir Heilsueflandi samfélag stutt erindi.

Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lífsháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Í slíku samfélagi er heilsa og líðan íbúa í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum.

Með Fjallabyggð eru 20 sveitarfélög formlegir aðilar að Heilsueflandi samfélagi og skuldbinda sig þannig til að efla heilsu og vellíðan íbúa sinna með markvissum hætti. Með innleiðingu Heilsueflandi samfélags vinna sveitarfélög einnig að innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri Heilsueflandi samfélags