Fara beint í efnið

4. október 2019

Akranes gerist Heilsueflandi samfélag

Akraneskaupstaður varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi (HSAM) þann 1. október sl. þegar Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis í Frístundamiðstöðinni Garðavelli Akranesi. Viðstaddir voru m.a. bæjarfulltrúar og ýmsir hagsmunaaðilar sem m.a. eiga fulltrúa í stýrihópi Akraness fyrir HSAM starfið.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að vinna með markvissum hætti að því að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Í slíku samfélagi er heilsa og líðan íbúa í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum. Með innleiðingu Heilsueflandi samfélags vinna sveitarfélög einnig að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Akraneskaupstaður er 29. sveitarfélagið sem gerist Heilsueflandi samfélag og búa nú um 91% landsmanna í slíku samfélagi.

Nánar um Heilsueflandi samfélag 

Nánar um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri Heilsueflandi samfélags