Fara beint í efnið

11. júní 2026

5,5 milljarðar til íslenskrar nýsköpunar í umhverfis- og loftslagsmálum

Íslenskir aðilar hafa fengið úthlutað 5,5 milljörðum króna úr umhverfis- og loftslagsáætlun Evrópusambandsins, LIFE, frá árinu 2021.

Alls hafa 10 verkefni fengið styrk úr áætluninni frá árinu 2021 en það kom fram á ársfundi LIFE áætlunarinnar á Íslandi sem var haldinn í Norræna húsinu í lok maí.

Gengi Íslands hefur verið umfram allar væntingar í þessari áætlun. Þessar upphæðir segja ekki alla söguna en það er ekki síður samstarfið og tengingarnar sem verða til í kringum þessi verkefni sem skilja eftir sig árangur sagði Sigurður Óli Sigursson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs hjá Rannís.

Á ársfundinum kynntu fulltrúar fjögurra verkefna reynslu sína af áætluninni.

Meðal þeirra var Sigurður Trausti Karvelsson, verkefnastjóri hjá FirstWater, en verkefnið Terraforming LIFE hlaut tæplega 900 milljón króna styrk til að þróa nýja tækni og aðferðir fyrir samþætt landbúnaðar- og fiskeldiskerfi til að styðja við fyrirhugaðan vöxt landeldis á Íslandi. Með aukinni framleiðslu eykst magn fiskeldismykju, sem kallar á sjálfbæra meðhöndlun hliðarstrauma.

Þá var verkefnið ICEWATER einnig kynnt en það er samstarf yfir 20 sveitarfélaga, fyrirtækja og stofnana og snýr að verndun vatnsgæða á Íslandi, meðal annars með úrbótum á fráveitu og forhreinsun á fráveituvatni frá matvælaiðnaði. Verkefnið hlaut um 3,5 milljarða styrk úr áætluninni.

Vatn er undirstaðan að þeim umhverfisgæðum og lífsgæðum sem við búum við á Íslandi og áskorun okkar er að viðhalda þeim frábæru vatnsgæðum sem við búum við. Hreint vatn er undirstaðan að nær allri verðmætasköpun á Íslandi, sagði Sæmundur Sveinsson, verkefnisstjóri ICEWATER hjá Umhverfis- og orkustofnun. Það eru gríðarlegir vaxtarmöguleikar en við þurfum að byggja upp innviði til að passa þessar auðlindir samhliða.

Einnig voru kynnt verkefnin:

  • Mýralíf (Peatland LIFEline) sem er umfangsmikið verkefni sem miðar að endurheimt votlendis og líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi. Verkefnið er samstarf sjö stofnana og félagasamtaka: Landbúnaðarháskóla Íslands, Lands og skógar, Náttúrufræðistofnunar, Fuglaverndar, Náttúruverndarstofnunar, Hafrannsóknastofnunar og bresku fuglaverndarsamtakanna RSPB.

  • Recet en verkefnið miðar að því að efla getu sveitarfélaganna og atvinnulífsins til að takast á við orkuskipti og smíða orkuskiptaáætlanir fyrir svæðin. Íslensk Nýorka og Eimur leiða verkefnið hér á landi en Vestfjarðastofa og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra eru einnig þátttakendur.


Landstengiliðir LIFE hjá Rannís sinna ráðgjöf við umsækjendur: