Ferli útflutnings við atvinnurekstur
Útflutningur vöru er almennt frjáls á Íslandi en ákveðnar vörur þurfa sérstakt leyfi eða útflutningur háður takmörkunum.
Þá kunna að vera innflutningsreglur í móttökulandinu sem huga þarf að áður en varan er send af stað.
Undirbúningur útflutnings
Tollflokkun
Finndu tollskrárnúmer vörunnar áður en þú flytur hana frá Íslandi. Númerið segir til um hvaða gjöld þarf að greiða, hvort takmarkanir gildi um útflutning og hvort þörf er á útflutningsleyfi.
Leyfisskyldar vörur
Tollflokkun vörunnar ræður því hvort þú þarft leyfi og hjá hvaða yfirvöldum þú sækir um það. Leyfi þarf til dæmis fyrir útflutning á lifandi dýrum, matvælum, plöntum og lífverum.
Reglur og kröfur í móttökulandinu
Það er á ábyrgð útflytjandans að kanna hvaða innflutningsreglur og leyfiskröfur gilda í móttökulandinu áður en varan er send af stað.
Viðskiptabann og þvingunaraðgerðir
Í sumum tilfellum geta alþjóðleg viðskiptabönn eða þvingunaraðgerðir haft áhrif á það við hverja má eiga í viðskiptum við og hvert má senda vörur. Þar sem reglur um þetta breytast hratt er mikilvægt að kynna sér gildandi takmarkanir.
Upprunareglur
Sumar vörur njóta fríðinda erlendis í gegnum fríverslunarsamninga og upprunaréttindi. Upprunareglur ráða því hvort varan þín fái lægri tolla eða tollfrelsi á áfangastað, en það veltur á því hvernig hún er framleidd.
Skoða nánar um fríverslunarsamninga og upprunaréttindi
Viðurkenndir útflytjendur
Viðurkenndur útflytjandi er fyrirtæki með leyfi til að gefa út upprunayfirlýsingar á vörureikningum vegna allra sendinga, óháð verðmæti þeirra. Þetta einfaldar ferlið og tryggir viðskiptavinum erlendis tilætluð tollfríðindi.
Sjá lista yfir viðurkennda útflytjendur.
Sækja um viðurkenningu sem útflytjandi
EORI-númer
Íslensk útflutningsfyrirtæki sem flytja út til ESB-ríkja þurfa að hafa EORI númer móttakanda vörunnar tilgreint í skjölunum.
Útflutningsskýrsla
Fyrirtæki sem flytja út vörur þurfa að skila útflutningsskýrslu til Skattsins. Leiðbeiningar um skil á tollskýrslu og leiðir til að koma í veg fyrir tafir afgreiðslu.
Leiðbeiningar fyrir útfyllingu skýrslu
Útflutningsskýrsla er lögboðið skjal við sérhvern útflutning í atvinnuskyni.
Skila rafrænt
Ef fyrirtækið flytur reglulega út vörur frá Íslandi án viðurkennds útflytjanda ættir þú að sækja um leyfi til að skila rafrænt til að auðvelda útflutning.
Vara fer frá Íslandi
Gera þarf ráð fyrir því að Skatturinn hafi eftirlit með útflutningi og geti tekið vörusendingar til skoðunar. Í framkvæmd geta tollyfirvöld kallað eftir fylgiskjölum eða skoðað flutningatæki og gáma.
Varan verður að vera til taks og aðgengileg fyrir tolleftirlit á þeim stað sem tilgreindur er í útflutningsskýrslunni.
Þegar útflutningsskýrsla hefur verið yfirfarin og samþykkt af Skattsins gefur hann út tollafgreiðsluheimild. Þetta er formlegt leyfi til þess að flutningur geti hafist. Farmflytjandi getur ekki farið með vöruna úr landi fyrr en heimild er í höndunum.
Þegar varan hefur yfirgefið landið staðfestir Skatturinn útflutninginn rafrænt. Sú staðfesting er lykilskjal fyrir bókhald fyrirtækisins til að sanna heimild til sölu án virðisaukaskatts.
Þegar tollafgreiðslu er lokið eru gjöld skuldfærð ef einhver eru.
Yfirlit og greiðsla
Þjónustuaðili
Skatturinn