Fara beint í efnið

Tollflokkun vöru

Tollskrá

Finndu rétt tollskrárnúmer fyrir vöruna þína.

Sérstakar reglur gilda um innflutning á ökutækjum.

Rétt tollflokkun tryggir

  • Greiðslu réttra innflutningsgjalda, eins og tolla og virðisaukaskatts

  • Nákvæmar hagtölur um inn- og útflutning

  • Vitneskju um þörf á leyfum við inn- og útflutning

Ef þú ert ekki viss um tollflokkun vörunnar

Þú getur óskað eftir bindandi áliti frá Skattinum. Þá veistu fyrirfram hvaða gjöld gilda og tollyfirvöld geta ekki endurákvarðað gjöld fyrir viðkomandi vöru.

Röng tollflokkun getur leitt til

  • Endurákvörðunar innflutningsgjalda auk dráttavaxta frá afgreiðsludegi

  • Tafa við tollafgreiðslu vörunnar

  • Upptöku vöru og sektar

Þú berð ábyrgð á því að tollflokkun og allar upplýsingar í aðflutningsskýrslu séu réttar.

Kæruleiðir

Nánar um .

Þjónustuaðili

Skatt­urinn