Fara beint í efnið

Beiðni um bindandi álit við tollflokkun

Beiðni um bindandi álit við tollflokkun (pdf)

Þú getur beðið um staðfestingu á tollflokkun vöru áður en hún er flutt inn. Þannig tryggir þú að tollflokkun vörunar er rétt.

Bindandi álit þýðir að tollyfirvöld geta ekki endurákvarðað aðflutningsgjöld vegna þeirra vöru sem álitið varðar. Bæði innflytjandi og Skatturinn eru bundin niðurstöðunni.

Svona er ferlið

  1. Sendu beiðni til Skattsins

    Beiðnina þarf að senda í tölvupósti á upplysingar@skatturinn.is. Lýstu vörunni og ósk um bindandi tollflokkun.

  2. Leggðu fram gögn um vöruna

    Beiðninni þurfa að fylgja þær upplýsingar sem nauðsynelegar eru til að ákvarða tollflokkun. Því nákvæmari sem gögnin eru, því fyrr færð þú svar.

  3. Skatturinn svarar innan 30 daga

    Beiðni þinni verður svarað skriflega innan 30 daga frá því hún barst eða gagnaöflun lauk.

Dæmi um gögn

Dæmi um gögn sem nýtast við tollflokkun:

  • Teikning eða mynd af vörunni

  • Vörulýsing eða bæklingur

  • Sýnishorn af vörunni

Ef þú ert í vafa um rétta tollflokkun áður en þú sendir beiðni, getur þú haft samband við Skattinn og fengið leiðbeiningar.

Beiðni um bindandi álit við tollflokkun (pdf)

Þjónustuaðili

Skatt­urinn