Óska eftir skýrslu um réttmæti fríðindayfirlýsingar (TS-124)
Þegar vörur af íslenskum uppruna eða fríðindauppruna eru fluttar frá Íslandi geta kaupendur erlendis fengið tollafríðindi, sem er afsláttur eða eftirgjöf á tollum, á grundvelli fríverslunarsamninga.
Til þess að varan fái tollfríðindi verður útflytjandi að sanna uppruna vörunnar með því að fá staðfestingu, sem kallast fríðindayfirlýsing (TS-124), á að upprunavottorð eða upprunayfirlýsing, sé réttmætt.
Svona er ferlið
Eftir að hafa fyllt út upprunayfirlýsingu þá þarf að:
Fylla út fríðindayfirlýsingu
Ef fleiri en ein tegund af íslenskri vöru er á sama upprunavottorði, verður að gera skýrslu um hverja vörutegund fyrir sig. Fylla verður út alla reiti skýrslunnar svo hún teljist gild.Skila útfylltri fríðindayfirlýsingu ásamt upprunavottorði til tollstöðvar
Tollgæslan staðfestir að varan uppfylli upprunareglur samkvæmt viðeigandi fríverslunarsamningi. Tollgæslan stimplar skírteinið og skilar þér.Sendu fríðindayfirlýsinguna með vörunni
Kaupandi notar upprunavottorð og fríðindayfirlýsingu til að sækja um tollfríðindi hjá tollayfirvöldum í sínu landi.
Algengasta upprunavottorðið er EUR.1. Einnig má nota EUR-MED eða upprunayfirlýsingu á reikningi, háð skilyrðum.
Þjónustuaðili
Skatturinn