Fara beint í efnið

EUR.1 Flutningsskírteini

Sniðmát fyrir EUR.1 flutningsskírteini (pdf)

Ef þú flytur vöru til lands sem Ísland hefur fríverslunarsamning við, getur kaupandinn fengið lækkun á innflutningsgjöldum í því landi. Til þess þarf kaupandi sönnun á því að varan sé af íslenskum uppruna sem fæst með flutningsskírteini.

Svona er ferlið

  1. Sækja EUR1-eyðublað á tollstöð

    Eyðublaðið er forprentað og fæst á öllum tollafgreiðslustöðum. Ekki er hægt að prenta það sjálfur af netinu. Þú getur fyllt það út fyrirfram með þessu sniðmáti og prentað á forprentaða eyðublaðið.

  2. Fylla út eyðublaðið

    Upplýsingar um vöruna, uppruna hennar og kaupanda þurfa að koma fram. Tollgæslan staðfestir að varan uppfylli upprunareglur samkvæmt viðeigandi fríverslunarsamningi.

  3. Skila eyðublaðinu til tollstöðvar til stimplunar

    Þetta er gert á þeirri starfsstöð þar sem útflutningstollafgreiðslan fer fram. Tollgæslan stimpar skírteinið og skilar þér.

  4. Sendu flutningsskírteinið með vörunni

    Kaupandinn notar EUR.1-skírteinið til að sækja um tollfríðindi hjá tollayfirvöldum í sínu landi.

Ef varan er að verðmæti yfir 6.000 EUR getur þurft sérstaka undanþágu. Hafðu samband við tollyfirvöld fyrir frekari upplýsingar í netfang upprunamal@skatturinn.is

Viðurkenndur útflytjandi

Viðurkenndir útflytjandur geta gefið út upprunavottorð á vörureikningi sjálfur, óháð verðmæti vörunnar. Sækja um að verða viðurkenndur útflytjandi.

Skoða lista yfir viðurkennda útflytjendur. Ef félagið er ekki á listanum er leyfið líklegast útrunnið.

Hafa samband

Netfang: upprunamal@skatturinn.is

Sniðmát fyrir EUR.1 flutningsskírteini (pdf)

Þjónustuaðili

Skatt­urinn