Fyrirtæki sem flytja út vörur þurfa að skila útflutningsskýrslu til Skattsins.
Útflytjandi getur fengið tollmiðlara til að sjá um útflutning og gerð útflutningsskýrslu.
Ef fyrrtæki flytur vöru út tímabundið frá Íslandi þarf að merkja það sérstaklega í útflutningsskýrslu.
Hvernig virkar ferlið?
Þú sendir útflutningsskýrslu rafrænt til Skattsins.
Farmflytjandi skráir vöruna á farmskrá og gefur henni sérstak sendingarnúmer, sem þarf að koma fram á útflutningsskýrslunni.
Skýrslan telst móttekin þegar hún er skráð í kerfi tollyfirvalda.
Ef útflutningsskýrslu er ekki skilað á réttum tíma getur Skatturinn lokað á afgreiðsluheimildir fyrirtækisins. Það þýðir að fyrirtækið getur hvorki flutt inn né út vörur fyrr en málið hefur verið leyst.
Til að koma í veg fyrir tafir á afgreiðslu
Tafir geta komið upp ef útflutningsskýrsla er ógreinilega eða ranglega útfyllt.
Þú getur flýtt fyrir ferlinu með því að:
hafa flutningsgjaldsreikninga, vörureikninga, upprunaskjöl og nauðsynleg útflutningsleyfi tilbúin áður en varan er flutt.
nota tollmiðlara (flutningsmiðlara) sem hafa leyfi til SMT-tollafgreiðslu og sjá um samskiptin við tollyfirvöld fyrir þína hönd.
tryggja að rétt tollskrárnúmer séu notuð og að upprunaland og tollmeðferð séu rétt tilgreind.
Skoða leiðbeiningar um útfyllingu útflutningsskýrslu [vísun í handbókina].
Þjónustuaðili
Skatturinn