Sækja um heimild til að skila tollskýrslu og öðrum upplýsingum rafrænt
Fyrirtæki í reglulegum inn- eða útflutningi þurfa að skila tollskýrslu, farmskrá og öðrum upplýsingum til Skattsins.
Hægt að skila þessum gögnum rafrænt.
Skilyrði
Til að fá leyfi til að skila rafrænt þarf að stunda:
inn- eða útflutning í atvinnuskyni, eða
framleiðslu eða viðgerðarþjónustu í atvinnuskyni
Fyrirtæki þurfa einnig:
tilskilin leyti til atvinnustarfsemi, svo sem verslunar-, iðnar- eða verslunarleyfi,
önnur nauðsynleg leyfi, til dæmis sem tollmiðlari
tilkynna Skattinum um starfsemi
að vera skráð í fyrirtækjaskrá
að vera á virðisaukaskattsskrá
að vera ekki í vanskilum með opinber gjöld eða skatta
nota hugbúnað sem Skatturinn hefur samþykkt (á ekki við um VEF-tollafgreiðslu)
að hafa starfsfólk með þekkingu á tollareglum
Umsóknir og umboð
Senda umsókn
Sendu umsóknina til Skattsins:
Netfang: upplysingar@skatturinn.is
Katrínartún 6, 105 Reykjavík
Tilkynna þarf allar breytingar á upplýsingum í umsókn eins fljótt og auðið er.
Þjónustuaðili
Skatturinn