Fara beint í efnið

Skil á tollskýrslu

Skila tollskýrslu í gegnum VEF-tollafgreiðslu

Fyrirtæki sem flytja inn vörur þurfa að skila tollskýrslu til Skattsins.

Innflytjandi fengið tollmiðlara til að sjá um innflutninginn og tollskýrsluna eða sótt um að skila tollskýrslu rafrænt. Leyfilegt er að skila 12 skýrslum á ári á pappír.

Ef þú ert að flytja vörur tímabundið til landsins skaltu sækja um tímabundinn innflutning án greiðslu aðflutningsgjalda.

Hvernig virkar ferlið?

  1. Þú sendir tollskýrslu rafrænt til Skattsins

  2. Skýrslan þarf að berast fyrir eða við komu vöru til landsins

  3. Skýrslan telst móttekin þegar hún er skráð í kerfi tollyfirvalda

  4. Vara fer í tollmeðferð ef allar upplýsingar eru réttar og fullnægjandi

Til að koma í veg fyrir tafir á afgreiðslu

Tafir geta komið upp ef tollskýrsla er ógreinilega eða ranglega útfyllt.

Þú getur flýtt fyrir ferlinu með því að:

  • hafa vörureikninga, upprunaskjöl og öll nauðsynleg gögn og leyfi tilbúin áður en sendingin kemur

  • nota tollmiðlara, þeir sérhæfa sig í tollafgreiðslu, þekkja kerfið og geta flýtt ferlinu verulega

  • tryggja að tollskrárnúmer (HS-númer) séu rétt tilgreind á reikningum

  • skila tollskýrslu rafrænt, annað hvort í gegnum VEF-tollafgreiðslu eða SMT-skeyti úr viðskiptahugbúnaði

Ef þú ert í vafa

Hafðu samband við Skattinn áður en þú tollafgreiðir:

Skila tollskýrslu í gegnum VEF-tollafgreiðslu

Þjónustuaðili

Skatt­urinn