Fara beint í efnið

Sækja um tímabundinn innflutning án greiðslu aðflutningsgjalda

Ef þú flytur inn vörur sem fara aftur úr landi, til dæmis til sýningar, keppni eða vinnu, getur þú sótt um leyfi til að sleppa við að greiða innflutningsgjöld.

Leyfið gildir á meðan vörurnar eru á Íslandi. Þegar þær fara aftur úr landi þarf að staðfesta endurútflutninginn hjá Skattinum.

Vörur sem eru undanþegnar vörugjaldi

Undanþága gildir um eftirfarandi vörur:

Sækja um

  1. Fylltu út aðflutningsskýrslu

    Sótt er um reit 14 á skýrslunni með viðeigandi undanþágutilvísun. Skýrslan er lögð fram hjá Skattinum

  2. Leggðu fram tryggingu

    Þú þarf að leggja fram tryggingu fyrir greiðslu innflutningsgjalda, nema þú njótir þegar greiðslufrests á gjöldunum.

  3. Leyfið gildir í 12 mánuði

    Hægt er að biðja um framlengingu en leyfið getur aldrei gilt lengur er 12 mánuði nema sérstakar ástæður mæli með því.

Trygging

  • A.T.A. ábyrgðarskjal

  • Fjártrygging eða skilyrðislaus ábyrgð banka eða vátryggingarfélags

Þegar vörurnar fara aftur úr landi

Þegar þú flytur vörurnar aftur úr landi þarft þú að fá staðfestingu Skattsins á endurútflutningnum. Ef staðfesting berst ekki verða innflutningsgjöld lögð á vörurnar.

Þjónustuaðili

Skatt­urinn