Þú getur sótt um niðurfellingu tolla og gjalda ef samtök eða stofnun taka á móti gjöfum til mannúðar- og líknarstarfsemi, eða ef verið er að flytja inn tæki og búnað til vísindarannsókna.
Skilyrði og fylgigögn
Skilyrði og hvaða fylgigögn þurfa að fylga fer eftir eðli og tilgangi.
Öllum umsóknum um niðurfellingu þurfa að fylgja:
Símanúmer þess sem sækir um
Vörurreikningar. Frumrit allra reikninga
Bankareikningur
Tvö eintök af umsókninni. Sendu bæði eintak umsækjanda og eintak Skattsins í tölvupóstinum
Sérstök skilyrði
Þessi flokkur á við ef samtök eða stofnanir fá gefins tæki, búnað eða aðrar fjárfestingarvörur til nota í líknarstarfi, til dæmis sjúkrastofnanir, sambýli, björgunarsveitir, Rauði krossinn og fleiri.
Skilyrði
Engin tengsl mega vera milli þess sem gefur vöruna og þess sem tekur á móti henni
Fylgigögn
Umsókn í tveimur eintökum
Frumrit vörureiknings
Gjafabréf og þakkarbréf. Undirrituð og dagsett bréf þar sem fram kemur yfirlýsing gefanda um tilgang gjafarinnar og staðfesting þiggjanda á því að hún verði nýtt í starfseminni
Þessi flokkur á við ef íslensk vísindastofnun kaupir búnað fyrir rannsóknarstyrki, eða fær tæki að láni eða gjöf frá erlendum aðilum.
Skilyrði
Tækin verða að vera nýtt beint til rannsóknarstarfa hjá stofnuninni.
Ef styrkurinn greiðir aðeins hluta af tækinu, þarf að borga aðflutningsgjöld af þeirri upphæð sem út af stendur.
Sé um gjöf að ræða mega engin fjárhagsleg tengsl vera á milli aðila.
Fylgigögn
Umsókn í tveimur eintökum
Staðfesting á styrkveitingunni, láninu eða gjöfinni
Skrifleg yfirlýsing um að tækið verði eingöngu notað beint í tilgreint rannsóknarverkefni
Senda umsóknina
Þegar þú hefur fyllt út eyðublaðið og gengið úr skugga um að öll fylgiskjöl séu tilbúin sem viðhengi, sendir þú tölvupóst á netfangið: