Áætla innflutningsgjöld
Þegar vörur eru fluttar til Íslands þarf að greiða innflutningsgjöld. Gjöldin eru til dæmis tollar, vörugjöld og virðisaukaskattur. Upphæðin ræðst af tollflokkun vörunnar og uppruna hennar.
Vörur sem ekki þarf að greiða innflutningsgjöld af
Sumar vörur eru undanþegnar innflutningsgjöldum. Til að njóta undanþágunnar þarft þú að sýna Skattinum fram á að hún eigi við þína sendingu.
Vörur fyrir sendiráð og sendierindreka erlendra ríkja
Vörur fyrir kjörræðismenn og ræðisskrifstofur erlendra ríkja
Vörur sem hervöld og liðsmenn Bandaríkjanna flytja til landsins
Efni og tæki til varnar gegn ofanflóðum
Vörur undanþegnar samkvæmt öðrum sérlögum eða alþjóðasamningum
Sækja um undanþágu
Það fer eftir aðstæðum hvort þú sækir um niðurfellingu fyrirfram eða endurgreiðslu eftir á.
Niðurfelling við innflutning
Sótt er um í tollskýrslu með því að fylla út undanþágutilvísun í reit 14 í eyðublaði E1 (pdf)
Endurgreiðsla eftir á
Ef gjöld voru greidd en undanþága átti við, sækir þú um endurgreiðslu með eyðublaði E20 (pdf)
Þjónustuaðili
Skatturinn