Óska eftir leiðréttingu innflutningsgjalda
Þú getur beðið um leiðréttingu á innflutningsgjöldum ef þú telur að tollafgreiðsla hafi byggt á röngum eða ófullnægjandi upplýsingum.
Sækja þarf um innan 6 ára frá tollafgreiðsludegi vörunnar.
Þú þarft að sýna fram á mistök
Ef leiðrétting leiðir til lægri gjalda þarf að leggja fram gögn sem sýna:
að upplýsingar sem voru notaðar voru rangar eða ófullnægjandi
Framvísa réttum gögnum og upplýsingum
Umsókn
Þú sækir um rafrænt í gegnum VEF-tollafgreiðslu.
Farðu í Afgreiðsla 2 í valmyndinni.
Sláðu inn sendingarnúmer og smelltu á Leita.
Smelltu á Staðfesta til að búa til afrit af skýrslunni.
Opnaðu afritið, leiðréttu upplýsingar og sendu það inn.
Sendu tölvupóst á skjalaskil@skatturinn.is:
settu sendingarnúmer í efni tölvupóstsins
útskýrðu hvað þú ert að leiðrétta
hengdu við fylgiskjöl sem styðja beiðnina
Niðurstöður
Þú færð svar um hvort beiðni sé samþykkt eða hafnað.
Ef gjöld breytast eru þau leiðrétt í samræmi við niðurstöðuna.
Þjónustuaðili
Skatturinn