Óska eftir leiðréttingu innflutningsgjalda
Leiðrétting eldri tollskýrslu með E-1 .1 eyðublaði
Aðeins má nota E-1.1 tollskýrslu vegna leiðréttinga á eldri tollskýrslum.
Skila skal E-1.1 skýrslu ásamt fylgiskjölum til Skattsins, nema um sé að ræða SMT-tollafgreiðslu þar sem afhendingarheimild er ekki komin út — þá nægir að senda nýja rafræna SMT-skýrslu.
Leiðbeiningar um útfyllingu eyðublaðs E-1.1
Við hvern reit er tilgreint hvaða upplýsingar á að fylla út og á hvaða formi þær eiga að vera. Tollstjóri reiknar tollverð og gjöld sjálfkrafa miðað við gildandi tollafgreiðslugengi. Innflytjendur þurfa ekki að umreikna erlendar fjárhæðir eða skrá tollgengi (reitur 18), en gott er að gera það til samanburðar.
Ef nota þarf sérstaka kóða er vísað í þá í lyklar í tollakerfi.
Fylla skal út leiðréttingarskýrslu með venjulegum hætti nema:
Reitur 3: Skráðu leiðréttingardaginn sem dagsetningu.
Neðst (fyrir neðan síðustu tollflokkunarfærslu í dálkum 29–35):
Skrifaðu textann: „Leiðrétting á aðflutningsskýrslu“.
Tilgreindu hvort hún sé tollafgreidd eða ótollafgreidd.
Bættu við afgreiðslunúmeri upphaflegu skýrslunnar (ef hún var þegar tollafgreidd).
Þjónustuaðili
Skatturinn