Fara beint í efnið

Endurákvörðun innflutningsgjalda að frumkvæði Skattsins

Ef innflutningsgjöld voru ekki rétt ákvörðuð við tollafgreiðslu færðu bréf um fyrirhugaða endurákvörðun frá Skattinum.

Algengar ástæður eru:

  • röng tollflokkun

  • rangt upprunaland

  • magn eða einingafjöldi stemmir ekki við vörureikning

Ferlið

Þú færð bréf

Í bréfinu kemur fram:

  • ástæða endurákvörðunar

  • frestur til að bregðast við

Þú getur mótmælt

Ef þú ert ósammála geturðu sent inn athugasemdir og gögn, til dæmis:

  • upplýsingar frá framleiðanda

  • myndir eða vörulýsingar

Ef þú svarar ekki innan frests verða gjöldin endurákvörðuð.

Tími og kostnaður

Almennur frestur

Ef allar upplýsingar lágu fyrir við tollafgreiðslu þarf að ljúka endurákvörðun innan 60 daga frá afhendingu vöru.

Lengri frestur - allt að 6 ár

Frestur getur verið allt að 6 ár frá tollafgreiðsludegi ef:

  • upplýsingar vantaði eða voru rangar

  • þú vissir eða máttir vita um rétta meðferð

  • um SMT-tollafgreiðslu var að ræða

Frestur við tímabundinn innflutningur

Ef vara var flutt inn tímabundið en síðar tollafgreidd endanlega er fresturinn 60 dagar frá ákvörðun gjalda.

Vextir

Ef þú þarft að greiða hærri gjöld:

  • leggjast dráttarvextir á frá tollafgreiðsludegi

  • þó að hámarki 2 ár aftur í tímann

Ef þú vilt mótmæla

Þú getur kært ákvörðunina. .

Þjónustuaðili

Skatt­urinn