Upprunareglur
Upprunareglur eru reglur sem ákvarða í hvaða landi vara telst eiga uppruna sinn. Þær byggjast ekki eingöngu á útflutningslandi vöru, heldur á því hvernig hún er framleidd og hvað liggur að baki framleiðslunni.
Tilgangurinn er að tryggja rétta beitingu tollfríðinda samkvæmt fríverslunarsamningum. Aðeins vörur sem uppfylla skilyrðin geta talist upprunavörur og þar með notið lægri tolla eða tollfrelsis við innflutning til samningsríkja. Innflytjandi þarf að leggja fram upprunasönnun, til dæmis EUR.1-flutningsskírteini eða upprunayfirlýsingu á vörureikningi, til stuðnings kröfu um fríðindameðferð.
Ísland er aðili að fjölmörgum fríverslunarsamningum, þar á meðal EES-samningnum og samningum EFTA við ríki í Evrópu og á Miðjarðarhafssvæðinu. Flestir þessara samninga byggjast á svonefndu PEM-samkomulagi, sem skapar sameiginlegan ramma um upprunareglur á milli samningsaðilanna.