Fara beint í efnið

EORI númer við tollafgreiðslu á Íslandi

EORI er einstakt auðkenni sem Evrópusambandið (ESB) notar til að rekja og skrá tollaupplýsingar í alþjóðaviðskiptum. EORI stendur fyrir Economic Operators Registration and Identification.

Ísland er ekki aðili að ESB og gefur ekki út EORI númer.

Innflutningur

Íslenskar tollayfirvöld nota þetta kerfi ekki og þarf því ekki að fylla inn EORI númer í tollaskjöl sem varða Ísland.

Útflutningur

Íslensk útflutningsfyrirtæki sem flytja út til ESB-ríkja þurfa að hafa EORI númer móttakanda vörunnar tilgreint í skjölunum.

Athugið: EORI númer er ekki það sama og VSK-númer eða skattanúmer. Þó að þau geti verið tengd eru þetta aðskilin kerfi.

  • EORI er eingöngu notað af tollayfirvöldum til að fylgjast með inn- og útflutningsstarfsemi.

  • Skattanúmer er notað af skattyfirvöldum í skattalegum tilgangi.

Þjónustuaðili

Skatt­urinn