Fara beint í efnið

Sækja um að verða viðurkenndur útflytjandi

Umsókn um leyfi sem viðurkenndur útflytjandi

Viðurkenndur útflytjandi er fyrirtæki með leyfi til að gefa út upprunayfirlýsingar á vörureikningum vegna allra sendinga, óháð verðmæti þeirra. Leyfið er gefið út af Skattinum og byggist á EES-samningnum og öðrum fríverslunarsamningum.

Skyldur og kröfur

Viðurkenndur útflytjandi ber fulla ábyrgð á öllum upprunayfirlýsingum sem gefnar eru út á vörureikningum, á sama hátt og hann hafi undirritað þær.

Auk þess ber hann skyldu til að:

  • hafa góða þekkingu á gildandi upprunareglum og skilyrðum fyrir útgáfu upprunasannana

  • geta sýnt fram á réttmæti upprunayfirlýsinga með viðeigandi gögnum ef Tollyfirvöld fara fram á það

  • tilkynna um fyrirhugaðan útflutning ef Skatturinn fer fram á það, svo hægt sé að skoða vörurnar

  • varðveita afrit af upprunayfirlýsingum ásamt útflutningsskjölum og sönnunargögnum í að minnsta kosti 6 ár

  • tilkynna Skattinum án tafar ef mistök verða, annar starfsmaður tekur við útgáfu upprunasannana, eða skilyrði leyfisins eru ekki lengur uppfyllt

Misnotkun leyfisins varðar refsiábyrgð skv. 169. grein tollalaga.

Kröfur til leyfisins

Leyfi er veitt að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:

  • Útflytjandi flytur reglubundið út upprunavöru, að meðaltali 24 sendingar á ári. Í undantekningartilvikum má gefa út leyfi til eins árs þrátt fyrir færri sendingar

  • Útflytjandi hefur góða þekkingu á gildandi upprunareglum

  • Fyrirtækið sem lögaðili ber ábyrgð á notkun leyfisins

Gildistími

Leyfið er veitt í 5 ár í senn. Sækja þarf um endurnýjun áður en það rennur út.

Afturköllun leyfis

Tollyfirvöldum er heimilt að afturkalla leyfi viðurkennds útflytjanda hvenær sem er, og ber skylda til þess ef misfarið er með leyfið eða skilyrði eru ekki lengur uppfyllt. Öll gögn og upplýsingar sem veitt eru heyra undir þagnarskyldu skv. 188. grein tollalaga.

Umsókn um leyfi sem viðurkenndur útflytjandi

Þjónustuaðili

Skatt­urinn