Í Tollalínunni getur þú séð allar upplýsingar um þínar vörusendingar, tollskýrslur, farmskrá og skuldfærð innflutningsgjöld.
Þú getur meðal annars sótt skuldfærsluyfirlit og löndunarvottorð.
Tollalína er opin inn- og útflytjendum, tollmiðlurum, farmflytjendum og einstaklingum með rafræn skilríki.
Auðkenning og umboð
Til að nota Tollalínuna þarft þú rafræn skilríki til innskráningar. Ekki þarf að sækja sérstaklega um aðgang.
Fyrir fyrirtæki
Prókúruhafi veitir starfsmönnum og öðrum til dæmis bókara aðgang með umboði á Ísland.is. Allir með umboð sjá sömu upplýsingarnar í Tollalínunni fyrir viðkomandi fyrirtæki.
Veita starfsmanni aðgang að Tollalínu.
Fyrir einstaklinga
Þú skráir þig inn beint án umboðs og sérð þínar eigin tollskýrslur.
Þjónustuaðili
Skatturinn