Fara beint í efnið
Skatturinn Forsíða
Skatturinn Forsíða

Skatturinn

Tolleftirlit og vöruskoðun

Hvernig fer eftirlitið fram?

Skjalaskoðun

Þegar skip eða flugvél kemur til eða yfirgefur landið hefst afgreiðsla á farmi og afhending gagna til Skattsins. Þegar gögn hafa verið yfirfarin og heimild gefin má hefjast handa við samskipti, lestun eða affermingu, og tollafgreiðslu.

Vöruskoðun

Tollgæslan hefur rétt til að skoða og rannsaka allar vörur sem fluttar eru til eða frá Íslandi, hvort sem þær eru fluttar:

  • með skipi eða flugvél á farmskrá

  • með pósti eða pakkaþjónustu

  • í farangri farþega

Tollgæslan notar áhættumat, kerfisbundna greiningu á sendingum, til að ákvarða hvaða vörur eru valdar til skoðunar.

Tollmiðlari, farmflytjandi eða innflytjandi sendinga sem eru ótollafgreiddar eru skyldugir til að aðstoða við skoðunina. Það getur falist í að opna umbúðir, framvísa vöru og veita allar umbeðnar upplýsingar.

Hvað er skoðað og af hverju?

Tollgæslan skoðar vörur með tilliti til margra þátta, ekki eingöngu gjalda.

Dæmi um þætti:

Þáttur

Útskýring

Tollar og gjöld

Er rétt gjald greitt? Er tollverð rétt?

Vörufölsun

Brýtur varningur gegn vörumerkjarétti?

Inn- og útflutningsbönn og leyfi

Þarf leyfi? Er vara bönnuð?

Fíkniefni

Reglubundið eftirlit og tilviljanaúrtak

Matvæli og lyf

Uppfylla heilbrigðiskröfur?

Umhverfismál

Til dæmis reglur um úrgang og hættuleg efni

Sendingar sem eru opnaðar vegna tollskoðunar eru merktar með tollgæslulímmiða.

Hvað gerist ef eitthvað er að?

Staða

Niðurstaða

Skjöl ófullnægjandi

Tollafgreiðslu frestað meðan rétthafi leitar úrræða

Rangar eða villandi upplýsingar í aðflutningsskýrslu

Tollafgreiðslu seinkað, getur leitt til endurákvörðunar aðflutningsgjalda og álags

Rangt tollskrárnúmer eða röng tollflokkun

Endurákvörðun aðflutningsgjalda, dráttarvextir og hugsanlegt álag

Greidd eru of lág eða há aðflutningsgjöld

Endurákvörðun, innheimta vangreiddra gjalda með dráttarvöxtum, mögulegt álag

Ógreidd gjöld við tollafgreiðslu

Vara ekki afhent, geymd sem ótollafgreidd þar til greitt er eða ráðstafað samkvæmt fyrirmælum Skattsins

Skortur á leyfum, samþykki frá viðkomandi yfirvaldi vantar til dæmis vegna lyfja, efna, matvæla, dýra, plantna

Tollafgreiðslu synjað, vara geymd uns ákveðið er um förgun eða flutning úr landi

Vörusending óaðgengileg til skoðunar, til dæmis innflytjandi, útflytjandi eða vörsluhafi aðstoðar ekki

Skatturinn lætur framkvæma vöruskoðun á kostnað innflytjanda/vörsluhafa

Vara uppfyllir ekki innflutningsskilyrði

Vöru er fargað eða hún send úr landi

Grunur um brot á takmörkunum til dæmis bannaðar vörur

Vara stöðvuð og geymd, getur leitt til haldlagningar, upptöku, förgunar eða málsmeðferðar hjá öðrum stjórnvöldum

Grunur um vörufölsun

Tollafgreiðslu frestað meðan rétthafi leitar úrræða

Vara haldlögð

Geymd á meðan málsmeðferð stendur, síðan seld á uppboði eða fargað

Tímabundinn innflutningur ekki skilað eða ekki rétt lokið

Tímabundinn innflutningur getur breyst í endanlegan, lagt á aðflutningsgjöld og vexti aftur í tímann

Vörur skemmdar eða orðnar óhæfar til neyslu áður en tollafgreiðslu eða málsmeðferð lýkur

Gripið til förgunar undir tolleftirliti, gjald fyrir förgun innheimt samkvæmt gjaldskrá

Vörur ekki sóttar eða yfirgefnar í geymslu

Getur leitt til nauðungarsölu eða förgunar á kostnað innflytjanda. Geymslugjöld geta verið lögð á, á meðan sendig bíður á geymslusvæði. Hafðu samband við farmflytjanda.