Fara beint í efnið

Vörur sem krefjast útflutningsleyfis

Útflutningur vöru er almennt frjáls á Íslandi en ákveðnar vörur þurfa sérstakt leyfi eða eru með takmörkunum. Athugaðu hvort varan þín falli undir leyfisskyldan vöruflokk áður en þú skilar útflutningsskýrslu.

Það er ábyrgð útflytjanda að kanna hvort vara þurfi leyfi. Skatturinn getur stöðvað sendingu sem er án fullnægjandi leyfa.

Vöruflokkur

Ábyrgðarstofnun

Sjá nánar

Sjávarafurðir og matvæli

Matvælastofnun

Um útflutninga matvæla á vef MAST

Plöntur

Matvælastofnun

Um útflutning á plöntum á vef MAST

Lifandi dýr, lifandi hross

Matvælastofnun

Fuglar, egg, eggskurn og hreiður

Umhverfisráðuneyti

Lyf og lyfjaefni

Lyfjastofnun

Um útflutning lyfja hjá Lyfjastofnun

Notaðir kælimiðlar

Umhverfis- og orkustofnun

Skotvopn, skotfæri og sprengiefni

Ríkislögreglustjóri

Nánar um útflutning skotvopna hjá Lögreglunni

Menningarminjar, fornleifar og forngripir

Minjastofnun Íslands

Um útflutning menningarverðmæta á vef Minjastofnunnar

Náttúruminjar

Náttúrufræðistofnun Íslands

Um útflutning náttúrupripa á vef Náttúrufræðistofnunnar

Friðlægar lífverur (CITES)

Fiskistofa

Um CITES fyrir sjávarlífverur hjá Fiskistofu

Tvínotkunarvörur og hernaðartengd tæki

Utanríkisráðuneytið

Um útflutning á vef Utanríkisráðuneytisins

Örverur frá jarðhitasvæði og erfðaefni þeirra

Náttúrustofnun Íslands

Viðskiptabann og þvingunaraðgerðir

Í sumum tilfellum geta alþjóðleg viðskiptabönn eða þvingunaraðgerðir haft áhrif á það við hverja má eiga í viðskiptum við og hvert má senda vörur. Þar sem reglur um þetta breytast hratt er mikilvægt að kynna sér gildandi takmarkanir.

Skoða gildandi viðskiptabönn hjá Utanríkisráðuneytinu

Þjónustuaðili

Skatt­urinn