Ólík réttindi fylgja dvalarleyfum eftir því á hvaða grundvelli þau eru veitt. Vinsamlegast kynntu þér þau réttindi og skyldur sem fylgja því dvalarleyfi sem þú hefur sótt um.
Dvalarleyfið má veita til allt að fjögurra ára, en þó ekki til lengri tíma en sem nemur gildistíma atvinnuleyfis.
Umsækjandi má ekki byrja að vinna fyrr en atvinnuleyfi hefur verið veitt.
Handhafi má ekki vinna hjá öðrum atvinnurekanda en þeim sem atvinnuleyfið var veitt til.
Dveljist handhafi leyfisins lengur en þrjá mánuði samfellt erlendis getur dvalarleyfið verið fellt niður. Dvalarleyfi útlendings fellur sjálfkrafa niður þegar lögheimili hans, sem skráð var hér á landi, hefur verið skráð erlendis í þrjá mánuði.
Réttur til endurnýjunar
Dvalarleyfið má endurnýja í allt að fjögur ár í senn, séu skilyrði leyfisins enn uppfyllt, en þó ekki til lengri tíma en sem nemur gildistíma atvinnuleyfis.
Ef dvalarleyfishafi sækir um endurnýjun á grundvelli starfs hjá sama atvinnurekanda og áður, má hann halda áfram að vinna á meðan umsókn um endurnýjun er í vinnslu þrátt fyrir að fyrra leyfi sé útrunnið. Skilyrði er að sótt hafi verið um endurnýjun áður en fyrra leyfi rann út.
Þrátt fyrir að dvalarleyfi hafi fallið niður er hægt að sækja um endurnýjun á dvalarleyfi, ef það er gert innan gildistíma fyrra dvalarleyfis og sanngirnisástæður mæla með því.
Réttur við afturköllun dvalarleyfis vegna atvinnumissis
Verði dvalarleyfi afturkallað vegna þess að slit verður á ráðningarsambandi er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi til eins árs til þess að leita sér annars starfs á grundvelli sérþekkingar sinnar. Heimilt er að veita slíkt dvalarleyfi án umsóknar.
Þegar innan við mánuður er eftir af gildistíma dvalarleyfis sem ber að afturkalla vegna þess að slit hefur orðið á ráðningarsambandi, er heimilt að veita dvalarleyfi til atvinnuleitar á grundvelli sérþekkingar að fenginni umsókn.
Réttur til fjölskyldusameiningar
Dvalarleyfið veitir handhafa rétt til fjölskyldusameiningar við
sambúðarmaka, eftir minnst eins árs sambúð,
börn sín yngri en 18 ára, ef handhafi hefur forsjá þeirra,
Réttur til ótímabundins dvalarleyfis
Dvalarleyfið getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.
Athugið að eitt af skilyrðum ótímabundins dvalarleyfis er að hafa ekki hafa dvalist meira en 90 daga erlendis samtals á hverju ári á gildistíma dvalarleyfis, talið frá útgáfudegi leyfis.
Dvalarleyfið má veita til allt að eins árs, en þó aldrei lengur en sem nemur gildistíma atvinnuleyfis. Sé um að ræða skýrt afmarkaða og tímabundna verkframkvæmd er heimilt að veita leyfið til lengri tíma.
Umsækjandi má ekki byrja að vinna fyrr en atvinnuleyfi hefur verið veitt.
Handhafi má ekki vinna hjá öðrum atvinnurekanda en þeim sem atvinnuleyfið var veitt til.
Dveljist handhafi leyfisins lengur en þrjá mánuði samfellt erlendis getur dvalarleyfið verið fellt niður. Dvalarleyfi útlendings fellur sjálfkrafa niður þegar lögheimili hans, sem skráð var hér á landi, hefur verið skráð erlendis í þrjá mánuði.
Réttur til endurnýjunar
Dvalarleyfið má endurnýja í allt að tvö ár í senn, séu skilyrði leyfis enn uppfyllt, en þó ekki til lengri tíma en sem nemur gildistíma atvinnuleyfis.
Ef dvalarleyfishafi sækir um endurnýjun á grundvelli starfs hjá sama atvinnurekanda og áður, má hann halda áfram að vinna á meðan umsókn um endurnýjun er í vinnslu þrátt fyrir að fyrra leyfi sé útrunnið. Skilyrði er að sótt hafi verið um endurnýjun áður en fyrra leyfi rann út.
Þrátt fyrir að dvalarleyfi hafi fallið niður er hægt að sækja um endurnýjun á dvalarleyfi, ef það er gert innan gildistíma fyrra dvalarleyfis og sanngirnisástæður mæla með því.
Réttur við afturköllun dvalarleyfis vegna atvinnumissis
Verði dvalarleyfi afturkallað vegna þess að slit verður á ráðningarsambandi er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi til sex mánaða til að leita sér annars starfs. Heimilt er að veita slíkt dvalarleyfi án umsóknar.
Þegar innan við mánuður er eftir af gildistíma dvalarleyfis sem ber að afturkalla vegna þess að slit hefur orðið á ráðningarsambandi, er heimilt að veita dvalarleyfi til atvinnuleitar að fenginni umsókn.
Réttur til fjölskyldusameiningar
Dvalarleyfið veitir handhafa rétt til fjölskyldusameiningar við
sambúðarmaka, eftir minnst eins árs sambúð,
börn sín yngri en 18 ára, ef handhafi hefur forsjá þeirra,
Réttur til ótímabundins dvalarleyfis
Dvalarleyfið getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.
Athugið að eitt af skilyrðum ótímabundins dvalarleyfis er að hafa ekki hafa dvalist meira en 90 daga erlendis samtals á hverju ári á gildistíma dvalarleyfis, talið frá útgáfudegi leyfis.
Dvalarleyfið má veita til allt að tveggja ára, en þó ekki til lengri tíma en sem nemur gildistíma atvinnuleyfis.
Umsækjandi má ekki byrja að vinna fyrr en atvinnuleyfi hefur verið veitt.
Handhafi má ekki vinna hjá öðrum atvinnurekanda en þeim sem atvinnuleyfið var veitt til.
Dveljist handhafi leyfisins lengur en þrjá mánuði samfellt erlendis getur dvalarleyfið verið fellt niður. Dvalarleyfi útlendings fellur sjálfkrafa niður þegar lögheimili hans, sem skráð var hér á landi, hefur verið skráð erlendis í þrjá mánuði.
Réttur til endurnýjunar
Dvalarleyfið má endurnýja í allt að tvö ár í senn, séu skilyrði leyfisins enn uppfyllt, en þó ekki til lengri tíma en sem nemur gildistíma atvinnuleyfis.
Ef dvalarleyfishafi sækir um endurnýjun á grundvelli starfs hjá sama atvinnurekanda og áður, má hann halda áfram að vinna á meðan umsókn um endurnýjun er í vinnslu þrátt fyrir að fyrra leyfi sé útrunnið. Skilyrði er að sótt hafi verið um endurnýjun áður en fyrra leyfi rann út.
Þrátt fyrir að dvalarleyfi hafi fallið niður er hægt að sækja um endurnýjun á dvalarleyfi, ef það er gert innan gildistíma fyrra dvalarleyfis og sanngirnisástæður mæla með því.
Réttur til fjölskyldusameiningar
Dvalarleyfið veitir handhafa rétt til fjölskyldusameiningar við
sambúðarmaka, eftir minnst eins árs sambúð,
börn sín yngri en 18 ára, ef handhafi hefur forsjá þeirra,
Réttur til ótímabundins dvalarleyfis
Dvalarleyfið getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.
Athugið að eitt af skilyrðum ótímabundins dvalarleyfis er að hafa ekki hafa dvalist meira en 90 daga erlendis samtals á hverju ári á gildistíma dvalarleyfis, talið frá útgáfudegi leyfis.
Dvalarleyfið skal að jafnaði ekki veitt til lengri tíma en eins árs á grundvelli sama samnings, þó ekki til lengri tíma en sem nemur gildistíma atvinnuleyfis.
Umsækjandi má ekki byrja að vinna fyrr en atvinnuleyfi hefur verið veitt.
Handhafi má ekki vinna hjá öðrum atvinnurekanda en þeim sem atvinnuleyfið var veitt til.
Dveljist handhafi leyfisins lengur en þrjá mánuði samfellt erlendis getur dvalarleyfið verið fellt niður. Dvalarleyfi útlendings fellur sjálfkrafa niður þegar lögheimili hans, sem skráð var hér á landi, hefur verið skráð erlendis í þrjá mánuði.
Réttur til endurnýjunar
Dvalarleyfið má endurnýja í allt að 6 mánuði í senn, þó ekki til lengri tíma en sem nemur gildistíma atvinnuleyfis.
Ef dvalarleyfishafi sækir um endurnýjun á grundvelli starfs hjá sama atvinnurekanda og áður, má hann halda áfram að vinna á meðan umsókn um endurnýjun er í vinnslu þrátt fyrir að fyrra leyfi sé útrunnið. Skilyrði er að sótt hafi verið um endurnýjun áður en fyrra leyfi rann út.
Þrátt fyrir að dvalarleyfi hafi fallið niður er hægt að sækja um endurnýjun á dvalarleyfi, ef það er gert innan gildistíma fyrra dvalarleyfis og sanngirnisástæður mæla með því.
Réttur til fjölskyldusameiningar
Dvalarleyfið veitir handhafa rétt til fjölskyldusameiningar við
sambúðarmaka, eftir minnst eins árs sambúð,
börn sín yngri en 18 ára, ef handhafi hefur forsjá þeirra,
Réttur til ótímabundins dvalarleyfis
Dvalarleyfið getur ekki verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun