Fara beint í efnið

Dvalarleyfi fyrir námsmenn

Dvalarleyfi vegna náms

Réttindi og skyldur

  • Dvalarleyfi fyrir námsmenn er að hámarki veitt til eins árs.

  • Dveljist handhafi leyfisins lengur en þrjá mánuði samfellt erlendis getur dvalarleyfið verið fellt niður. Dvalarleyfi útlendings fellur sjálfkrafa niður þegar lögheimili hans, sem skráð var hér á landi, hefur verið skráð erlendis í þrjá mánuði.

Réttur til endurnýjunar leyfis

  • Dvalarleyfið má endurnýja til eins árs í senn, séu skilyrði leyfis enn uppfyllt og námsárangur fullnægjandi, sjá nánar í skilyrðum fyrir endurnýjun námsmannaleyfis.

  • Þrátt fyrir að dvalarleyfi hafi fallið niður er hægt að sækja um endurnýjun á dvalarleyfi, ef það er gert innan gildistíma fyrra dvalarleyfis og sanngirnisástæður mæla með því.

Réttur til endurnýjunar eftir útskrift

  • Handhafi námsmannaleyfis sem lýkur bakkalárgráðu á grunnstigi, prófgráðu af meistarastigi eða prófgráðu á doktorsstigi frá háskóla hér á landi getur fengið útgefið sérstakt dvalarleyfi til atvinnuleitar að námi loknu, sjá nánar í skilyrðum fyrir endurnýjun námsmannaleyfis. Dvalarleyfi til atvinnuleitar er hugsað sem brú á milli námsmannaleyfis og sérfræðileyfis.

Réttur til fjölskyldusameiningar

  • Aðeins handhafar námsmannaleyfis sem stunda fullt nám á háskólastigi til bakkalárgráðu á grunnstigi, prófgráðu af meistarastigi eða til prófgráðu á doktorsstigi eiga rétt til fjölskyldusameiningar við:

  • Börn erlendra ríkisborgara fá ekki íslenskan ríkisborgararétt þótt þau fæðist á Íslandi. Dvalarréttur barna sem fæðast á Íslandi fer eftir dvalarrétti foreldranna.

  • Umsókn um fjölskyldusameiningu við námsmann má leggja fram á sama tíma og umsókn um dvalarleyfi fyrir námsmann eða síðar.

    • Athugið að umsóknir um fjölskyldusameiningu við námsmenn eru ekki afgreiddar samhliða umsóknum um námsmannaleyfi. Það er lengri bið eftir afgreiðslu umsókna um dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar og því er ekki hægt að reikna með því að fjölskyldumeðlimir fái útgefið dvalarleyfi á sama tíma og námsmaður.

    • Umsóknir um dvalarleyfi fyrir maka og börn námsmanns eru ekki afgreiddar í flýtimeðferð jafnvel þótt námsmaður hafi fætt barn hér á landi.

  • Einstaklingar í diplóma-námi eiga ekki rétt til fjölskyldusameiningar.

Réttur til að vinna

  • Dvalarleyfið veitir rétt til að vinna á Íslandi án atvinnuleyfis í allt að 60% starfshlutfalli samanlagt meðan á námi stendur. Samanlagt þýðir að ef námsmaður vinnur á fleiri en einum vinnustað meðfram námi þá er honum ekki heimilt að vera í meira 60% starfshlutfalli samanlagt á öllum vinnustöðum.

  • Heimilt er að starfa í hærra starfshlutfalli ef eitt af eftirfarandi á við:

    • Starfið fer fram á milli námsanna samkvæmt námskrá viðkomandi skóla.

    • Einstaklingur hefur lokið háskólanámi hér á landi og dvelur hér í atvinnuleit á grundvelli sérþekkingar sinnar.

    • Um er að ræða formlegt starfsnám á vinnustað.

Skylda til að veita upplýsingar um atvinnuþátttöku

  • Við endurnýjun dvalarleyfis þarf námsmaður að leggja fram upplýsingar um atvinnuþátttöku sína til staðfestingar á að hann hafi ekki starfað umfram heimilað starfshlutfall.

  • Útlendingastofnun getur einnig óskað eftir upplýsingum um atvinnuþátttöku á gildistíma dvalarleyfis og aflað nauðsynlegra upplýsinga frá öðrum opinberum aðilum og vinnuveitanda. Ef atvinnuþátttaka samræmist ekki skilyrðum laganna getur Útlendingastofnun endurskoðað eða fellt niður heimild viðkomandi til atvinnuþátttöku.

Réttur til ótímabundins dvalarleyfis

  • Dvalarleyfið getur ekki verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis, nema í þeim tilfellum þar sem umsækjandi

    • hefur í minnst tvö ár haft dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis, 

    • hefur áður haft dvalarleyfi vegna náms í minnst tvö ár

    • og hefur því samtals verið í samfelldri löglegri dvöl á landinu í minnst fjögur ár.

  • Athugið að eitt af skilyrðum ótímabundins dvalarleyfis er að hafa ekki hafa dvalist meira en 90 daga erlendis samtals á hverju ári á gildistíma dvalarleyfis, talið frá útgáfudegi leyfis.

Dvalarleyfi vegna náms

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun