Börn á Íslandi fá alls konar bólusetningar til að vernda þau fyrir sjúkdómum. Sóttvarnalæknir ákveður fyrir Ísland hvernig er best að nota bólusetningar og aðrar leiðir til að vernda fólk gegn sjúkdómum sem smitast milli manna.
Hér fyrir neðan eru spurningar og svör um bólusetningar. Það getur verið gott að skoða svörin og velta þeim fyrir sér áður en þú ferð í bólusetningu.
Bólusetning er oftast gerð þannig að bóluefni er sprautað í handlegginn á fólki. Bóluefnið er vökvi í lítilli sprautu. Það sýnir líkamanum hvernig sýkill sem getur gert fólk veikt er í laginu. Ónæmiskerfið í líkamanum, það sem lætur okkur batna þegar við veikjumst, getur þá lært að þekkja sýkilinn án þess að við verðum veik. Þá er ónæmiskerfið mjög fljótt að byrja að hreinsa sýkilinn úr líkamanum ef við fáum hann í okkur og minni hætta á að veikjast þótt við hittum einhvern sem er með sýkilinn
Stundum þarf svo aftur bólusetningu seinna til að hjálpa ónæmiskerfinu að muna betur hvernig ákveðinn sýkill er í laginu, það er kallað örvunarbólusetning.
Aukaverkun er þegar lyf gerir eitthvað meira en bara það sem það á að gera, oftast eitthvað óþægilegt. Til dæmis getur manni orðið illt í maganum ef maður tekur lyf við hita en hitinn lagast samt.
Bólusetningar valda oft aukaverkunum. Algengustu aukaverkanirnar eru óvenjulega mikil þreyta, verkur í handleggnum, hiti og höfuðverkur. Svona aukaverkanir eftir bólusetningu lagast hjálparlaust á nokkrum dögum en stundum hjálpar að hvíla sig eða fá meðal við hita eða verk. Það þarf mjög sjaldan hjálp frá lækni til að aukaverkanir eftir bólusetningu lagist.
Ef þér líður illa stuttu eftir bólusetninguna, talaðu um það við einhvern fullorðinn sem þú treystir, t.d. foreldra þína eða skólahjúkrunarfræðinginn.
Bóluefni eru gefin til að koma í veg fyrir veikindi ef maður smitast af sýkli sem bóluefnið líkir eftir. Flest bóluefni líkja eftir hættulegum sjúkdómum (til dæmis bóluefni gegn heilahimnubólgu) eða sjúkdómum sem geta verið hættulegir stundum (til dæmis bóluefni gegn kíghósta) eða gert fólk viðkvæmara fyrir hættulegum sjúkdómum (til dæmis bóluefni gegn mislingum og inflúensu). Bóluefni minnkar líkur á að fá alvarlegan sjúkdóm og að þurfa að leggjast inn á spítala.
Upplýsingar um bóluefni sem eru í boði fyrir öll börn og ungmenni á Íslandi eru á vef sóttvarnalæknis.
Sum börn eru með sjúkdóma eða vandamál sem valda því að þau þurfa fleiri bólusetningar eða önnur bóluefni heldur en flest börn fá. Til dæmis geta börn með hjartasjúkdóm þurft að fá annað bóluefni gegn lungnabólgubakteríu heldur en önnur börn. Á Íslandi köllum við ráðleggingar um slíkar bólusetningar „bólusetningar forgangshópa“ og um þær er hægt að lesa á vef sóttvarnalæknis þótt börn geti líka verið í forgangshópi.
Sum börn eru með sjúkdóma eða vandamál sem valda því að þau ættu ekki að fá ákveðin bóluefni sem flest börn fá. Til dæmis geta börn með hættulegt eggjaofnæmi ekki fengið inflúensubóluefni sem eru notuð á Íslandi og börn með mjög veikt ónæmiskerfi, til dæmis börn sem fá krabbameinslyf, geta ekki fengið lifandi bóluefni. Lifandi bóluefni sem eru notuð fyrir börn á Íslandi eru bóluefni gegn rótaveiruniðurgangi, bóluefni gegn mislingum, hettusótt, rauðum hundum og hlaupabólu og nefúðabóluefni gegn inflúensu.
Börn sem ætla að ferðast geta líka þurft fleiri bólusetningar en börn sem ekki ferðast frá Íslandi. Um bólusetningar og fleira sem þarf að hugsa um ef farið er í langt ferðalag má lesa á vef sóttvarnalæknis um ráðleggingar um heilsuvernd barna vegna ferðalaga.
Bóluefnin sem við notum á Íslandi er búið að rannsaka mjög vel og gefa þau milljónum fullorðinna og barna. Aukaverkanir eru sjaldgæfar og þau eru mjög örugg.
Sum börn eru með sjúkdóma eða vandamál sem valda því að þau ættu ekki að fá ákveðin bóluefni sem flest börn fá. Til dæmis geta börn með hættulegt eggjaofnæmi ekki fengið inflúensubóluefni sem eru notuð á Íslandi og börn með mjög veikt ónæmiskerfi, til dæmis börn sem fá krabbameinslyf, geta ekki fengið lifandi bóluefni. Lifandi bóluefni sem eru notuð fyrir börn á Íslandi eru bóluefni gegn rótaveiruniðurgangi, bóluefni gegn mislingum, hettusótt, rauðum hundum og hlaupabólu og nefúðabóluefni gegn inflúensu.
Þú þarf að tala um það við foreldra þína og þið að ákveða það saman. Enginn er neyddur til að fá sprautu sem vill það ekki.
Frá 16 ára aldri geta ungmenni á Íslandi óskað sjálf eftir bólusetningu án þess að forsjáraðili (mamma, pabbi eða annar fullorðinn sem ber ábyrgð á þér) sé sammála.
Bólusetningar ungmenna eru oft gerðar í skólum á Íslandi. Þá þarf ekki neinn að koma með þér. Ef þú færð bólusetningu í heilsugæslunni þarf forsjáraðili (mamma, pabbi eða annar fullorðinn sem ber ábyrgð á þér samkvæmt lögum) að koma með þér ef þú ert ekki orðinn 16 ára.
Flest bóluefni eru gefin með sprautu. Þá er sprautað í handlegginn við öxlina. Þú ræður hvoru megin. Flestir sitja þegar bólusetningin er gerð en það má líka biðja um að fá að liggja. Ef það hefur liðið yfir þig í blóðprufu eða þér finnst mjög óþægilegt að hugsa um blóð eða sprautur er gott að liggja meðan þú færð bólusetningu.
Sum bóluefni eru gefin með nefúða. Pípettan sem bóluefnið er í líkist sprautu án nálar og það er sprautað úr henni í aðra nösina og svo hina nösina. Þetta er mjög líkt því að nota nefsprey til að hreinsa nefstíflu þegar þú færð kvef.
Flestum finnst óþægilegt að fá sprautu en yfirleitt ekki mjög vont. Það tekur mjög stuttan tíma að gera bólusetningu.
Það getur verið gott að sitja á höndunum eða sitja á annarri hendinni og halda í hendi þess sem er með þér eða halda á bolta eða einhverju til að kreista. Það er minna óþægilegt að fá sprautu ef sá handleggur er afslappaður, kannski hjálpar að ímynda sér að hann sé sofandi. Fyrir marga er best að horfa í hina áttina og reyna að hugsa um eitthvað annað.
Ef þér líður illa á undan eða eftir sprautu er mikilvægt að þú látir einhvern fullorðinn sem þú treystir vita, til dæmis foreldra þína eða skjólahjúkrunarfræðinginn.
Þegar bólusetning er búin þarf að bíða í 15 mínútur því sumir hafa ofnæmi fyrir einhverju í sprautunni og fá þá einkenni (útbrot og kláði, rauðar eða bólgnar varir/tunga, yfirlið, uppköst eða erfitt að anda). Hjúkrunarfræðingar (eða læknar) sem gera bólusetninguna munu hjálpa ef slíkt gerist.
Þjónustuaðili
Embætti landlæknis