Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Ráðleggingar vegna ferðalaga, sérstaklega á svæði þar sem mikið er um smitsjúkdóma, ættu að vera í höndum einstaklinga sem hafa fengið sérstaka þjálfun í heilsuvernd vegna ferðalaga. Bólusetningar eru mikilvægur þáttur í heilsuvernd vegna ferðalaga en fá stundum óheppilega mikið vægi, miðað við ráðleggingar um hreinlæti, leiðbeiningar um val á næringu við hæfi við aðrar aðstæður en við þekkjum best, malaríuvarnir, skordýravarnir almennt, slysavarnir og svo framvegis.

Fyrir svæðabundnar ráðleggingar, fréttir af faröldrum og þess háttar má skoða:

Bólusetningar barna vegna ferðalaga

Lykilatriði varðandi ráðleggingar um bólusetningar í tengslum við ferðalög er að reyna að tryggja að viðeigandi skammtar af bóluefnum sem eru í áætlun hér séu gefnir áður en ferðast er ef þess er kostur. Þeir sjúkdómar sem við þurfum helst að verjast með almennum bólusetningum hér á landi eru enn algengari víða í heiminum en hér og geta flestir valdið alvarlegri veikindum hjá yngri börnum en þeim sem eldri eru.

Í sumum tilvikum getur verið ráðlegt að bæta við bólusetningum sem ekki eru í almennri áætlun, gefa aukaskammta af bóluefni sem er annars í áætlun fyrir eldri börn eða jafnvel ráðleggja fólki að leita leiða til að fá bólusetningar á áfangastað fyrir barn sitt, til dæmis ef bóluefni er óaðgengilegt hér eða ef barnið dvelur svo lengi á áfangastað að það nær aldri til að fá bólusetningu sem ekki er hægt að gefa fyrir ferðina vegna ungs aldurs.

Ferðalag með ungt barn getur verið áhættusamt og í sumum tilvikum getur verið við hæfi að ráðleggja fólki að ferðast ekki með ungt barn, svo sem ef mislingafaraldur stendur yfir á tilvonandi áfangastað eða ef hætta er á malaríu á áfangastað og barnið of ungt til að forvarnarmeðferð sé raunhæf.

Barn undir 3 mánaða aldri þegar ferð hefst

Barn 3−6 mánaða þegar ferð hefst

Barn 6−9 mánaða þegar ferð hefst

Barn 9−12 mánaða þegar ferð hefst

Barn 12−23 mánaða þegar ferð hefst

Barn 2 ára−3,5 árs þegar ferð hefst

Barn 3,5 árs−10 ára þegar ferð hefst

Barn 10−14 ára þegar ferð hefst

Þjónustuaðili

Embætti land­læknis