Útlendingastofnun: Alþjóðleg vernd
Þarf ég að borga fyrir talsmann sem umsækjandi um vernd?
Sem umsækjandi um vernd býðst þér réttaraðstoð þér að kostnaðarlausu frá þeim talsmanni sem þér er skipaður í kjölfar umsóknar um alþjóðlega vernd. Við umsókn um vernd færð þú tækifæri til að tilgreina ákveðinn talsmann af talsmannalista Útlendingastofnunar, sért þú með slíkan í huga. Viljir þú velja annan talsmann eftir að þér hefur verið skipaður talsmaður berð þú kostnaðinn af þeirri þjónustu.
Athugaðu að þeir talsmenn sem skipaðir eru af Útlendingastofnun eru með öllu óháðir stofnuninni en hafa sótt sérstaklega um, og fengið samþykkt, að sinna slíkri þjónustu.
Sjá nánari upplýsingar um talsmannaþjónustu fyrir umsækjendur um vernd.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?