Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Hvernig get ég sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi?

Þú þarft að vera á Íslandi, annað hvort við landamæri landsins eða innan þeirra, til að sækja um alþjóðlega vernd hér á landi.

Umsókn þarf að leggja fram í eigin persónu. Hún þarf ekki að vera á tilteknu formi og er nóg að umsækjandi lýsi ósk sinni munnlega.

Hægt er að sækja um vernd hjá lögreglunni á Keflavíkurflugvelli við komuna til landsins.

Einstaklingar sem þegar eru komnir til landsins geta sótt um vernd í móttökumiðstöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd að Egilsgötu 3 í Reykjavík. Þar er opið á dagvinnutíma.

Einstaklingar sem staddir eru utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um vernd á næstu lögreglustöð.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?

Útlendingastofnun

Þjón­ustuver

Afgreiðslan er opin 9 - 14 alla virka daga
Þjónustuverið er opið mán - fim: 9 - 14 & fös 9 - 12

Dalvegur 18, 201 Kópavogi (sjá kort)

Sendu okkur línu

Sími: +354 444 0900