Fara beint í efnið

Hefur nám erlendis áhrif á stöðu mína sem flóttamaður á Íslandi?

Nám erlendis hefur ekki bein áhrif á stöðu þína sem flóttamaður á Íslandi nema ef þú færir í nám í heimalandi þínu. Flóttamaður sem notfærir sér sjálfviljugur vernd heimalands síns á ný getur átt á hættu að alþjóðleg vernd hans verið afturkölluð.

Þótt nám erlendis hafi almennt ekki áhrif á stöðu þína sem flóttamaður á Íslandi þá getur það haft áhrif á dvalarleyfi þitt á Íslandi.

Ef þú dvelur lengur en þrjá mánuði samfellt erlendis getur dvalarleyfi þitt verið fellt niður. Dvalarleyfið þitt fellur sjálfkrafa niður þegar lögheimili þitt hefur verið skráð erlendis í þrjá mánuði. Þrátt fyrir að dvalarleyfi hafi fallið niður er hægt að sækja um endurnýjun dvalarleyfis ef það er gert innan gildistíma fyrra dvalarleyfis og sanngirnisástæður mæla með því.

Hafa þarf í huga að eitt af skilyrðum fyrir því að fá ótímabundið dvalarleyfi er að leyfishafi hafi ekki dvalist erlendis lengur en 90 daga samtals á ári á gildistíma hvers fyrra dvalarleyfis, talið frá útgáfudegi leyfisins.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?

Útlendingastofnun

Þjón­ustuver

Afgreiðslan er opin 9 - 14 alla virka daga
Þjónustuverið er opið mán - fim: 9 - 14 & fös 9 - 12

Dalvegur 18, 201 Kópavogi (sjá kort)

Sendu okkur línu

Sími: +354 444 0900