Fara beint í efnið

Mannauðstorg ríkisins: Ráðningar

Auglýsingaskylda - embætti

Skylt er að auglýsa öll störf hjá ríkinu. Tvö meginsjónarmið eru fyrir auglýsingaskyldunni:

  • Að veita öllum tækifæri til að sækja um laus störf hjá ríkinu

  • Að stuðla að því að ríkið eigi kost á færum og hæfum starfsmönnum

Fjallað er um skyldu til að auglýsa stöður embættismanna í 7. grein starfsmannalaga. Embætti skal auglýsa í Lögbirtingarblaðinu og skal umsóknarfrestur ekki vera skemmri en tvær vikur frá útgáfudegi blaðsins. 

Setning til reynslu 

Setningu til reynslu verður að auglýsa í samræmi við 1. málsgrein gr. 7. grein starfsmannalaga. Hún er til eins árs í senn þó aldrei lengur en til tveggja ára. 

Undanþágur frá auglýsingaskyldu embætta

Um þetta er fjallað í 1. málsgrein 7. grein, 23., 24., og 36. grein starfsmannalaga

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?

merki

Mannauð­s­torg ríkisins

Ábyrgðaraðilar síðunnar eru Kjara- og mannauðssýsla ríkisins og Mannauðs- og launasvið Fjársýslu ríkisins.