Mannauðstorg ríkisins: Ráðningar
Lengd umsóknarfrests
Mismunandi reglur gilda um lengd umsóknarfrests fyrir almenn störf og embætti.
Almenn störf
Umsóknarfrestur skal að lágmarki vera tíu dagar frá birtingu auglýsingar og skal hann miðast við fyrstu birtingu á starfatorg.is og skal ljúka á virkum degi. Sjá reglur um auglýsingar lausra starfa.
Embætti
Umsóknarfrestur um laust embætti skal að lágmarki vera tvær vikur frá útgáfudegi Lögbirtingablaðsins. Sjá 7. grein starfsmannalaga.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?
Mannauðstorg ríkisins
Ábyrgðaraðilar síðunnar eru Kjara- og mannauðssýsla ríkisins og Mannauðssvið Fjársýslunnar.