Fara beint í efnið

Umgengni barns

Umgengni barns við aðra en foreldra

Í vissum tilfellum getur barnið átt rétt á umgengni við aðra nákomna aðila eins og ömmu sína og afa eða systkini, ef það er talið barninu til hagsbóta. 

Þetta á til dæmis við ef:

  • annað foreldra barns er látið.

  • báðir foreldrar barns eru látnir.

  • foreldri er ófært um að sinna umgengnisskyldu sinni við barnið, til dæmis vegna veikinda eða vistunar á stofnun.

  • foreldri nýtur verulega takmarkaðrar umgengni við barnið, til dæmis vegna búsetu erlendis.

Barnið sjálft, nánir vandamenn látins foreldris eða aðrir nákomnir barni, geta óskað eftir að sýslumaður taki umgengnismál til meðferðar og ljúki því með úrskurði eða samningi eftir atvikum.

Ef barn er í fóstri á vegum barnaverndarnefndar, tekur barnaverndarnefnd ákvörðun um umgengni við barnið.

Þegar sýslumanni berst tilkynning um andlát sem ber með sér að hinn látni eigi barn undir lögaldri skal hann kanna tengsl barns við nána vandamenn þess eða aðra nákomna því.

Sýslumaður skal vekja athygli á rétti barnsins og gefa barni og foreldri eða forsjáraðila þess tækifæri til að mæta á fund sýslumanns á tilteknum tíma. Sýslumaður skal hafa samráð við barn eftir því sem aldur og þroski þess gefur tilefni til sem og við foreldri eða forsjáraðila, og skal hann leiðbeina þeim um inntak umgengnisréttar skv. 1. mgr. og um réttaráhrif hans. Barn getur sjálft gert kröfu um umgengni.
Upplýsingar til tilkynnanda andláts

Sá sem tilkynnir andlát til sýslumanns og fram kemur að hinn látni átti barn eða börn undir 18 ára aldri, fær afhentar leiðbeiningar um framangreindar reglur. Á bakhlið þess skjals er jafnframt óskað eftir að veittar verði upplýsingar um nánustu vandamenn barns og þeim upplýsingum síðan komið til sýslumanns. Óskað er eftir að þær upplýsingar hafi borist sýslumanni innan fjögurra mánaða frá andlátinu.

Þess er einnig óskað að tilkynnandi andláts, sé hann ekki aðstandandi, komi upplýsingum þessum í hendur forsjáraðila eða umönnunaraðila barns.

Þjónusta sýslumanna

Hægt er að óska eftir þjónustu sýslumanns með því að hringja eða senda tölvupóst á viðkomandi embætti sýslumanns.

Reglugerð um meðferð mála samkvæmt hinu nýju ákvæðum hefur ekki verið sett. Að svo stöddu munu sýslumenn ekki hafa frumkvæði að því að setja sig í samband við forsjáraðila eða vandamenn barns, á grundvelli 2. og 3. mgr. 46. b greinar barnalaga.

Þjónustuaðili

Sýslu­menn

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15