Þróunarsjóður námsgagna
Markmiðið Þróunarsjóðs námsgagna er tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla.
Styrkveitingar Þróunarsjóðs námsgagna
Stefnt skal að því að námsefnið sem styrkt er, verði gefið út með rafrænum hætti og gert aðgengilegt á netinu, þegar við á.
Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís (Mínar síður Rannís). Ekki er tekið við umsóknum á öðru formi.
Auglýst er eftir umsóknum einu sinni á ári. Umsóknarfrestur er í febrúar.
Tekið er á móti fyrirspurnum á throunarsjodur.namsgagna@rannis.is eða í síma 515 5881.
Rannís hefur umsjón með Þróunarsjóði námsgagna fyrir hönd mennta- og barnamálaráðuneytis.
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands