Þróunarsjóður námsgagna
Mat og úthlutun
Skilyrði úthlutunar
Námsefnið þarf að henta til kennslu á þremur fyrstu skólastigunum. Námsefni fyrir háskólastig og fullorðinsfræðslu er ekki styrkt.
Samkvæmt reglugerð sjóðsins skal mat á umsóknum einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum:
gildi og mikilvægi verkefnis með tilliti til þeirra markmiða sem Þróunarsjóði námsgagna eru sett,
líkum á því að umsækjanda takist að ná þeim markmiðum er verkefnið miðar að,
starfsferli og faglegum eða fræðilegum bakgrunni umsækjanda og annarra þátttakenda m.t.t. þeirra krafna sem verkefnið gerir til þeirra.
Umsækjendum er bent á að kynna sér matskvarða Þróunarsjóðs námsganga.
Mats- og úthlutunarferlið
Hver umsókn er metin af tveimur stjórnarmönnum.
Út frá mati ákveður stjórn úthlutun.
Allir umsækjendur fá tilkynningu um hvort þeir hafa hlotið styrk eða ekki.
Verði af veitingu styrks þarf forsvarsmaður styrkþega að undirrita rafrænt skilmála styrksins.
Umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðargögn.
Reglur 3.gr. stjórnsýslulaga gilda um vanhæfi stjórnarmanna/matsmanna.
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands