Þróunarsjóður námsgagna
Greiðslur og skýrsluskil
Upplýsingar um greiðslur og skýrsluskil má finna í rafrænt undirrituðum skilmálum styrks.
Greiðslur
Fyrri greiðsla styrks er 70%. Greidd eftir að styrkþegi undirritar skilmála styrks rafænt.
Lokagreiðsla er 30%. Greidd eftir að lokaskýrsla hefur verið samþykkt.
Skýrslur
Lokaskýrslu ásamt eintaki af afurð verkefnisins skal hafa borist sjóðsstjórn áður en lokagreiðsla fer fram og eigi síðar en 18 mánuðum eftir að styrkur er veittur, en þá skal verkinu vera að fullu lokið, nema um annað sé samið.
Forsenda lokagreiðslu er að sjóðsstjórn fallist á að markmiðum verkefnis hafi verið náð og að styrkþegi hafi uppfyllt skilmála styrksins.
Sá notandi (einstaklingur eða fyrirtæki) sem sendi umsókn getur nálgast skýrsluform verkefnis á „mínum síðum“ Rannís.
Ef með þarf er hægt að flytja skýrsluform á annan notanda. Beiðni um það er send á netfang sjóðsins; throunarsjodur.namsgagna@rannis.is.
Ef styrkþegi sækir um fyrir nýtt verkefni áður en yfirstandandi verkefni er lokið þarf að skila áfangaskýrslu fyrir yfirstandandi verkefni til að ný umsókn sé tekin til greina.
Lýsing á framkvæmd verkefnis til opinberrar birtingar í lokaskýrslu birtist með færslu verkefnis á gagnatorgi Rannís.
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands