Þróunarsjóður námsgagna
Leiðbeiningar vegna umsókna
Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís (Mínar síður Rannís). Ekki er tekið við umsóknum á öðru formi.
Umsókn um styrk úr Þróunarsjóði námsgagna skal skila í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís - Mínar síður Rannís.
Til að nálgast umsóknarformið þarf að tengjast umsóknarkerfi Rannís með rafrænum skilríkjum eða auðkennisappinu (sérstaklega ef notandi er erlendis).
Ekki er nauðsynlegt að umsækjandi sé innskráður notandi í umsóknarkerfinu en það er heppilegt ef hægt er. Einstaklingur getur verið innskráður notandi í umsóknarkerfi en tilgreint annan umsækjanda í umsókn.
Eftir að umsókn er send sést hún undir „Umsóknir->Innsendar“ á mínum síðum þess notanda sem sendi.
Umsókn má vera á íslensku eða ensku.
Ráðleggingar til umsækjenda
Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér vel allar leiðbeiningar vegna umsókna í sjóðinn.
Stofnið umsókn tímanlega í umsóknarkerfinu.
Ekki skila umsókn á síðasta degi.
Fjárhagsáætlun - heildarkostnaður og tekjur verkefnis
Mikilvægt er að hafa í huga að við gerð kostnaðaráætlunar að átt er við
heildarkostnað verkefnisins. Tilgreina þarf fjármögnun á móti styrknum sem sótt er um til
Þróunarsjóðs námsgagna. Ef sótt er um styrk eða framlög til annarra skal það koma fram í
umsókn.
Að jafnaði eru kaup á tækjum eða hugbúnaði ekki styrkhæfur kostnaður. Við útreikninga á
launakostnaði (þ.m.t. launatengd gjöld) skal að hámarki taka mið af áætluðum
lektorslaunum.
Mikilvægt er að fara vel yfir kostnaðaryfirlit áður en umsókn er send inn.
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands