Fara beint í efnið

2026:

  • Námsefni sem styður við íslenskukennslu eða STEM greinar

  • Námsefni sem hvetur til skapandi kennslu og gefið er út á fjölbreyttu formi

  • Námsefni fyrir iðn- og starfsnám

  • Námsefni í tengslum við gervigreind og hvernig nýta má gervigreind í skólastarfi

  • Námsefni sem umsækjendur geta rökstutt að mikill skortur sé á.

2025:

  • Námsefni sem styður endurskoðuð greinarsvið aðalnámskrár grunnskóla

  • Námsefni sem hvetur til skapandi kennslu

  • Námsefni sem gefið er út á fjölbreyttu formi

  • Námsefni sem umsækjendur geta rökstutt að mikill skortur sé á

2024:

  • Námsefni ætlað börnum með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn vegna tungumálakennslu

  • Námsefni sem styður við stærðfræði og náttúrugreinar

  • Námsefni sem miðar að markvissri eflingu íslensks orðaforða og hugtakaskilnings í ýmsum námsgreinum

2023:

  • Námsefni ætlað innflytjendum vegna tungumálakennslu

  • Námsefni sem styður við samfélags- og náttúrugreinar

  • Námsefni sem miðar að markvissri eflingu íslensks orðaforða og hugtakaskilnings í ýmsum námsgreinum.

  • Þróun námsefnis er tengist stuðningi við börn á flótta

2022:

  • Námsefni sem styður við skapandi kennsluhætti á sviði list- og verkgreina

  • Námsefni sem styður við náms- og starfsfræðslu

  • Námsefni sem miðar að markvissri eflingu íslensks orðaforða og hugtakaskilnings í ýmsum námsgreinum.

2021:

  • Námsefni er styður við heilsueflingu nemenda, andlega jafnt sem líkamlega heilsu

  • Námsgögn er styðja við aðlögun og íslenskunám innflytjenda

  • Námsgögn sem miða að markvissri eflingu orðaforða og hugtakaskilnings í ýmsum námsgreinum.

2020:

  • Námsgögn er styðja við aðlögun og íslenskunám innflytjenda

  • Námsgögn sem miða að markvissri eflingu orðaforða og hugtakaskilnings í ýmsum námsgreinum. Sérstaklega er horft til íslensku, náttúru- og stærðfræði. Námsgögn þurfa að höfða til áhugahvatar hópa sem standa höllum fæti

  • Námsefni sem styður við félagsfærni nemenda með áherslu á þátttöku í samfélagi, sjálfsmynd og líðan.

2019:

  • Námsefni fyrir framhaldsskóla og leikskóla

  • Námsefni fyrir íslensku, íslensku sem annað tungumál og íslenskt táknmál

  • Þýðingar og aðlögun á námsefni á öllum skólastigum, t.d. á sviði náttúru- og raungreina og verk- og starfsnáms

2018:

  • Námsefni fyrir framhaldsskóla

  • Námsgögn fyrir innflytjendur vegna tungumálakennslu

  • Forritun fyrir byrjendur

2017:

  • Námsgögn fyrir innflytjendur vegna tungumálakennslu og tvítyngis

  • Námsefni í fjármálalæsi þvert á skólastig

  • Námsgögn fyrir starfsnám

2016:

  • Sérstök áhersla var lögð á námsgögn sem nýttu stafræna tækni til að efla lestur og lesskilning, sem og efni sem stuðlaði að nýsköpun í list- og tæknigreinum

2015:

  • Efni sem stuðlaði að aukinni almennri hæfni í stærðfræði og tölfræði og tengdi þessi fög við daglegt líf

2014:

  • Efni sem styður við skilgreinda lykilhæfni í aðalnámskrá grunn- og framhaldssjóla og/eða skilgreind námssvið í aðalnámskrá leikskóla

2013:

  • Efni sem stuðlaði að því að efla starf í anda grunnþátta menntunar fyrir öll skólastigin í samræmi við aðalnámskrá

2012:

  • Efni sem stuðlaði að því að efla starf í anda grunnþátta menntunar fyrir öll skólastigin í samræmi við aðalnámskrá

2011:

  • Verkefni sem fléttuðu grunnþætti í nýjum námskrám fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla inn í námsgögnin. Þessir grunnþættir voru: læsi í víðum skilningi, lýðræði, jafnrétti, menntun til sjálfbærni og skapandi starf

2010:

  • Sérstök áhersla var lögð á námsgögn sem tengdust lestrarkennslu og læsi í víðum skilningi