Þróunarsjóður námsgagna
Hvað er styrkt?
Styrkir eru veittir til þróunar, gerðar og útgáfu námsgagna fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.
Boðið er upp á tvo styrkjaflokka:
Þróunarstyrk að fjárhæð allt að 3 milljónum króna.
Þróunar- og útgáfustyrk að fjárhæð allt að 6 milljónum króna.
Umsóknir um þróunar- og útgáfustyrk þurfa jafnframt að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
Gerðar eru auknar kröfur um hæfi höfunda.
Fyrir þarf að liggja staðfesting frá starfandi útgefanda um útgáfu námsgagnanna.
Umsókn skal fylgja sundurliðuð og nákvæm verkáætlun.
Í umsókn skal gera ítarlega grein fyrir tilgangi námsgagnanna og fyrirhugaða nýtingu þeirra í skólastarfi.
Gjaldgengir umsækjendur eru:
Allir þeir sem skrifa og útbúa námsefni fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Þetta geta verið kennarar, sjálfstætt starfandi fræðimenn og útgáfufyrirtæki.
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands