Sjóður
Þróunarsjóður námsgagna
Staða
Lokað fyrir umsóknir
Frestur var til 16. febrúar 2026
Umsóknartímabil
11.12.2025 - 16.02.2026
Styrkjaflokkun
Innlent, Fjármögnun
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands
Verkefnastyrkur Þróunarsjóðs námsgagna
Þróunarsjóður námsgagna veitir styrki til að þróunar og útgáfu námsefnis fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.
Sjóður
Þróunarsjóður námsgagna
Staða
Lokað fyrir umsóknir
Frestur var til 16. febrúar 2026
Umsóknartímabil
11.12.2025 - 16.02.2026
Styrkjaflokkun
Innlent, Fjármögnun
Verkefnastyrkur Þróunarsjóðs námsgagna
Lokað fyrir umsóknir / Frestur var til 16. febrúar 2026
Umsóknarfrestur er 15. febrúar ár hvert eða næsta virka dag ef 15. febrúar er frídagur, alltaf klukkan 15: 00 að íslenskum tíma
Þróunarsjóður námsgagna styrkir þróun og útgáfu námsgagna fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Markmið sjóðsins er að stuðla að vönduðu og aðgengilegu námsefni sem styður við fjölbreytta kennslu og nám. Stefna sjóðsins er að styrkt námsgögn verði, eftir því sem við á, gefin út á rafrænu formi og gerð aðgengileg á netinu.
Boðið er upp á tvo styrkjaflokka:
Þróunarstyrk að fjárhæð allt að 3 milljónum króna.
Þróunar- og útgáfustyrk að fjárhæð allt að 6 milljónum króna.
Umsókn má vera á íslensku eða ensku.
Hverjir geta sótt um?
Kennarar eða annað starfsfólk skóla.
Námsefnishöfundar.
Sjálfstætt starfandi fræðimenn.
Útgáfufyrirtæki.
Hvernig er sótt um?
Sækja skal um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís - Mínar síður Rannís
Til að nálgast umsóknarformið þarf umsækjandi að tengjast umsóknarkerfi Rannís með rafrænum skilríkjum eða auðkennisappinu (sérstaklega ef notandi er erlendis).
Leiðbeiningar um innskráningu og hvernig ný umsókn er stofnuð (ef opið er fyrir umsóknir).
Svör við spurningum
Tekið er á móti fyrirspurnum í netfanginu throunarsjodur.namsgagna@rannis.is eða í síma 515 5881.
Þjónustuaðili