Fara beint í efnið

Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús

Loftslags- og orkusjóður auglýsir 300 milljónir króna í styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús.

Veiting styrkja fer fram samkvæmt reglugerð nr. 1566/2024 um Loftslags- og orkusjóð.

Umsóknarfrestur er til 1. október 2026 kl. 15:00.

Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús

Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús

Loftslags- og orkusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús á Íslandi. Markmið styrkjanna er að stuðla að uppbyggingu hleðsluinnviða á sameiginlegum bílastæðum fjöleignarhúsa og styðja við húsfélög sem standa frammi fyrir sérstaklega kostnaðarsamri uppbyggingu á slíkum innviðum.

Markmið

Styrkjunum er ætlað að:

  • Auðvelda húsfélögum í fjölbýlishúsum að uppfylla lögbundnar skyldur sínar um að bjóða upp á hleðslumöguleika þegar eigendur óska þess.

  • Veita markvissan stuðning þar sem kostnaður við nauðsynlega innviðauppbyggingu er sérstaklega hár.

  • Stuðla að bættu aðgengi íbúa í fjölbýlishúsum að hleðsluinnviðum.

Hverjir geta sótt um

Umsækjendur skulu vera húsfélög fjöleignarhúsa sem skráð eru sem lögaðilar. Einstaklingar geta ekki sótt um. Styrkhæf eru eingöngu fjölbýlishús með a.m.k. 8 íbúðir þar sem byggingarleyfi var gefið út áður en breyting á byggingarreglugerð nr. 112/2012 tók gildi 20. júní 2018. Fjölbýlishús sem hafa þegar komið upp hleðslustöðvum á sameiginlegum bílastæðum eru ekki styrkhæf. Sjá nánar í handbók.

Heildarfjárhæð til úthlutunar

Heildarfjárhæð til úthlutunar er allt að 300 m.kr.

Styrkhlutfall og hámark

Styrkhæfir kostnaðarliðir eru eftirfarandi:

  1. Lagnaleiðir frá rafmagnstöflu að hleðsluinnviðum við sameignarstæði.

  2. Stækkun, færsla eða ný heimtaug fjölbýlishússins (þar sem dreifiveita staðfestir þörf).

Sjá nánari útlistun á styrkhæfum kostnaði í handbók. Húsfélög geta sótt um vegna annars eða beggja kostnaðarliða eftir aðstæðum. Styrkur er reiknaður sameiginlega fyrir báða kostnaðarliði.

  • Grunnframlag íbúa er að lágmarki 75 þús. kr. á hverja íbúð.

  • Styrkhlutfall: allt að 50% af styrkhæfum kostnaði umfram grunnframlag íbúa.

  • Hámarks styrkupphæð á hvert verkefni: 5 m.kr. samtals.

  • Lágmarks styrkupphæð á hvert verkefni: 300 þús. kr. samtals.

Helstu skilyrði verkefna

  • Byggingarleyfi fjölbýlishússins var gefið út fyrir 20. júní 2018 (reglugerð nr. 669/2018).

  • Framkvæmdir taka eingöngu til sameiginlegra bílastæða og sameiginlegrar innviðauppbyggingar, ekki einkastæða.

  • Fjölbýlishúsið hefur engar hleðslustöðvar á sameiginlegum bílastæðum.

  • Vegna stækkunar, færslu eða nýrrar heimtaugar skal dreifiveita staðfesta með skriflegum hætti að framkvæmdin sé nauðsynleg, jafnvel með álagsstýringu, og veita kostnaðarmat.

  • Vinna við raflagnir og tengingar skal unnin af löggiltum rafverktaka. Fylgja skal leiðbeiningum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um hleðslu rafbíla og raflagnir.

  • Styrkir eru greiddir út þegar hleðslustöðvar eru komnar í notkun.

  • Styrkur nær ekki til kaupa á hleðslustöðvum.

Nánari skilyrði má finna í handbók.

Umsóknarfrestur

Opnað verður fyrir umsóknir 22. maí 2026 og lokafrestur er til 1. október 2026 kl. 15:00. Umsóknir skulu berast í gegnum rafrænt umsóknarkerfi á orkusjodur.is.

Nánari upplýsingar

Nánari lýsing á umsóknarferli, kröfum, fylgigögnum og matsferli er í handbók sem fylgir þessari auglýsingu. Svör við almennum fyrirspurnum verða birt í "Spurt og svarað" á vef sjóðsins. Öðrum spurningum má beina til orkusjodur@uos.is.