Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur - HSN Fjallabyggð, Hornbrekka

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

28.09.2026

Umsóknarfrestur

08.10.2026

Hjúkrunarfræðingur - HSN Fjallabyggð, Hornbrekka

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) í Fjallabyggð óskar eftir að ráða metnaðarfullan og jákvæðan hjúkrunarfræðing til starfa á Hornbrekku í Ólafsfirði. Um er að ræða 60-100% ótímabundið starf í skemmtilegu starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á góða teymisvinnu og þverfaglegt samstarf.

Á Hornbrekku eru 22 hjúkrunarrými. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða og heildræna þjónustu, virðingu og vellíðan íbúa. Á Hornbrekku starfar samhentur hópur starfsfólks sem vinnur saman að því að veita góða umönnun og skapa hlýlegt og öruggt heimili fyrir íbúana.

HSN Fjallabyggð starfar á starfsstöðvum í Ólafsfirði, Siglufirði og Dalvík. Á starfsstöðunum starfar samhentur og öflugur hópur fagfólks sem leggur metnað sinn í að veita framúrskarandi heilbrigðisþjónustu. Við leggjum áherslu á vellíðan í vinnu, jákvætt starfsumhverfi og að vera fjölskylduvænn vinnustaður. Hér gefst tækifæri til að starfa í nánu og fjölskylduvænu samfélagi þar sem stutt er í fjölbreytta útivist og góð lífsgæði.

Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn hjúkrun og umönnun

  • Stuðningur, ráðgjöf og hjúkrunarmeðferð

  • þátttaka í teymisvinnu, umbótaverkefnum og að vinna að góðri liðsheild

  • Samstarf við aðra faghópa innan stofnunarinnar

  • Önnur tilfallandi verkefni skv. lögum og reglugerðum

Hæfniskröfur

  • Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi

  • Reynsla er kostur en ekki skilyrði

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð

  • Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki

  • Reynsla og/eða áhugi á teymisstarfi

  • Góð íslenskukunnátta

  • Faglegur metnaður og lausnamiðun

  • Gott orðspor, hreint sakavottorð og ökuleyfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af prófskírteinum og starfsleyfi.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.

Starfshlutfall er 60-100%

Umsóknarfrestur er til og með 08.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sunna Eir Haraldsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: sunna.e.haraldsdottir@hsn.is

Sími: 432 4366

Kristín Margrét Gylfadóttir

yfirhjúkrunarfræðingur svæðis

Tölvupóstur: kristin.m.gylfadottir@hsn.is

Sími: 432 4300

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur - HSN Fjallabyggð, Hornbrekka

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

28.09.2026

Umsóknarfrestur

08.10.2026