
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsfólk í afleysingar í aðhlynningu (tímavinna) - HSN Blönduós
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
10-50%
Starf skráð
11.11.2026
Umsóknarfrestur
30.11.2026
Starfsfólk í afleysingar í aðhlynningu (tímavinna) - HSN Blönduós
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Blönduósi óskar eftir jákvæðu, ábyrgðarfullu og þjónustulunduðu starfsfólki til starfa við aðhlynningu í afleysingum (tímavinna). Starfið felst í almennri aðhlynningu og umönnun skjólstæðinga í samstarfi við annað heilbrigðisstarfsfólk.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, en formleg aðlögun afleysingarstarfsmanna mun hefjast í desember.
Hér má sjá upplýsingar um HSN á Blönduósi: Fjölbreytt starfsemi og hlýtt starfsumhverfi
Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar
Ekki hika við að hafa samband fyrir frekari upplýsingar um starfið.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leysa af í fjarveru annars starfsfólks
Umönnun einstaklinga í samvinnu við fagaðila
Þátttaka í teymisvinnu
Stuðla að vellíðan, öryggi og virðingu skjólstæðinga
Frágangur, þrif og önnur tilfallandi verkefni sem tengjast daglegum rekstri deildarinnar
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Áhugi á að starfa með fólki
Reynsla af umönnun er kostur
Rík þjónustulund, jákvætt viðmót og mjög góð samskiptahæfni
Áreiðanleiki og sveigjanleiki
Góð íslenskukunnátta
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Hreint sakavottorð og gott orðspor
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélagið Samstaða hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Starfshlutfall er 10-50%
Umsóknarfrestur er til og með 30.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Helga Margrét Jóhannesdóttir
yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
Tölvupóstur: helga.margret.johannesdottir@hsn.is
Sími: 432 4133

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsfólk í afleysingar í aðhlynningu (tímavinna) - HSN Blönduós
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
10-50%
Starf skráð
11.11.2026
Umsóknarfrestur
30.11.2026