
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur HSN Dalvík-Fjallabyggð
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
40-60%
Starf skráð
02.10.2026
Umsóknarfrestur
20.10.2026
Hjúkrunarfræðingur HSN Dalvík-Fjallabyggð
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Dalvík-Fjallabyggð óskar eftir að ráða metnaðarfullan og jákvæðan hjúkrunarfræðing til starfa. Um er að ræða 60% starf við heilsugæsluna á Dalvík með megináherslu á skólahjúkrun og lífsstílsmóttöku.
Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni og tækifæri til starfsþróunar í hlýlegu og uppbyggilegu umhverfi. Óskað er eftir því að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
HSN Dalvík-Fjallabyggð starfar á starfsstöðvum í Ólafsfirði, Siglufirði og Dalvík. Á starfsstöðunum starfar samhentur og öflugur hópur fagfólks sem leggur metnað sinn í að veita framúrskarandi heilbrigðisþjónustu. Við leggjum áherslu á vellíðan í vinnu, jákvætt starfsumhverfi og að vera fjölskylduvænn vinnustaður. Hér gefst tækifæri til að starfa í nánu og fjölskylduvænu samfélagi þar sem stutt er í fjölbreytta útivist og góð lífsgæði.
Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar
Helstu verkefni og ábyrgð
Heilsuvernd og heilsuefling barna og ungmenna í grunnskólum
Reglubundnar heilsufarsskoðanir og skimun samvkæmt viðmiðum skólahjúkrunar
Fræðsla til nemenda, foreldra og starfsfólk skóla um heilsutengd málefni
Stuðningur, ráðgjöf og hjúkrunarmeðferð
Þátttaka í teymisvinnu, umbótaverkefnum og að vinna að góðri liðsheild
Samstarf við aðra faghópa innan stofnunarinnar
Önnur tilfallandi verkefni skv. lögum og reglugerðum
Hæfniskröfur
Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi
Reynsla og/eða áhugi af heilsugæsluhjúkrun er kostur
Áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og þjónustulund
Sjálfstæði í starfi, lausnamiðuð hugsun og sveigjanleik
Góð íslensku- og enskukunnátta
Faglegur metnaður og lausnamiðun
Gott orðspor, hreint sakavottorð og ökuleyfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af prófskírteinum og íslenskt starfsleyfi. Fyrir nema skal fylgja með staðfesting á námi.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Gildi HSN eru: Fagmennska - samvinna - virðing
Starfshlutfall er 40-60%
Umsóknarfrestur er til og með 20.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Kristín Margrét Gylfadóttir
yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
Tölvupóstur: kristin.m.gylfadottir@hsn.is
Sími: 432 4300

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur HSN Dalvík-Fjallabyggð
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
40-60%
Starf skráð
02.10.2026
Umsóknarfrestur
20.10.2026