
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði/sjúkraliðanemi - HSN Fjallabyggð, Hornbrekka
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
28.09.2026
Umsóknarfrestur
08.10.2026
Sjúkraliði/sjúkraliðanemi - HSN Fjallabyggð, Hornbrekka
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) í Fjallabyggð óskar eftir að ráða sjúkraliða og/eða sjúkraliðanema til starfa á Hornbrekku í Ólafsfirði. Um er að ræða 60-100% ótímabundið starf. Unnið er á þrískiptum vöktum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Á Hornbrekku eru 22 hjúkrunarrými. Hornbrekka er hlýlegur og öflugur vinnustaður þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, góða þjónustu og velferð íbúa. Leitað er að jákvæðum og ábyrgum einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa í góðu teymi og taka þátt í mikilvægu umönnunarstarfi.
HSN Fjallabyggð starfar á starfsstöðvum í Ólafsfirði, Siglufirði og Dalvík. Á starfsstöðunum starfar samhentur og öflugur hópur fagfólks sem leggur metnað sinn í að veita framúrskarandi heilbrigðisþjónustu. Við leggjum áherslu á vellíðan í vinnu, jákvætt starfsumhverfi og að vera fjölskylduvænn vinnustaður. Hér gefst tækifæri til að starfa í nánu og fjölskylduvænu samfélagi þar sem stutt er í fjölbreytta útivist og góð lífsgæði.
Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita skjólstæðingum og sjúklingum faglega og einstaklingsmiðaða umönnun
Aðstoða við athafnir daglegs lífs og almenna hjúkrun
Taka þátt í teymisvinnu og vinna náið með öðrum heilbrigðisstéttum
Skrá og miðla upplýsingum samkvæmt verklagi stofnunarinnar
Stuðla að velferð, öryggi og vellíðan skjólstæðinga og sjúklinga
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Fullgilt sjúkraliðapróf og íslenskt starfsleyfi. Staðfesting á námi fyrir nema
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
Reynsla og/eða áhugi á teymisstarfi
Góð íslenskukunnátta
Gott orðspor og hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af prófskírteinum og starfsleyfi.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Kristín Margrét Gylfadóttir
yfirhjúkrunarfræðingur
Tölvupóstur: kristin.m.gylfadottir@hsn.is
Sími: 4324300

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði/sjúkraliðanemi - HSN Fjallabyggð, Hornbrekka
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
28.09.2026
Umsóknarfrestur
08.10.2026