
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsfólk við aðhlynningu - HSN Fjallabyggð, Hornbrekka
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
10-70%
Starf skráð
28.09.2026
Umsóknarfrestur
08.10.2026
Starfsfólk við aðhlynningu - HSN Fjallabyggð, Hornbrekka
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) í Fjallabyggð óskar eftir starfsfólki í tímabundna afleysingu við aðhlynningu á Hornbrekku í Ólafsfirði. Mikilvægt að viðkomandi geti unnið vaktavinnu. Á Hornbrekku eru 22 hjúkrunarrými. Áhersla er lögð á að skapa heimilislegt og hlýlegt umhverfi þar sem íbúar njóta öruggrar og faglegrar umönnunar.
HSN Fjallabyggð starfar á starfsstöðvum í Ólafsfirði, Siglufirði og Dalvík. Á starfsstöðunum starfar samhentur og öflugur hópur fagfólks sem leggur metnað sinn í að veita framúrskarandi heilbrigðisþjónustu. Við leggjum áherslu á vellíðan í vinnu, jákvætt starfsumhverfi og að vera fjölskylduvænn vinnustaður. Hér gefst tækifæri til að starfa í nánu og fjölskylduvænu samfélagi þar sem stutt er í fjölbreytta útivist og góð lífsgæði.
Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn aðhlynningarstörf og stuðningur við íbúa í samstarfi við fagaðila
Verkefni í býtibúri tengd undirbúningi og frágangi máltíða
Þátttaka í teymisvinnu
Frágangur, þrif og önnur tilfallandi verkefni sem tengjast daglegum rekstri deildarinnar
Þvottur og skyld störf, móttaka og frágangur á þvotti
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og lausnamiðuð nálgun
Þolinmæði og nærgætni
Reynsla og/eða áhugi á teymisstarfi
Góð íslenskukunnátta
Hreint sakavottorð og gott orðspor
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 18 ára aldri
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Eining - Iðja hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Starfshlutfall er 10-70%
Umsóknarfrestur er til og með 08.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Kristín Margrét Gylfadóttir
yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
Tölvupóstur: kristin.m.gylfadottir@hsn.is
Sími: 432 4300

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsfólk við aðhlynningu - HSN Fjallabyggð, Hornbrekka
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
10-70%
Starf skráð
28.09.2026
Umsóknarfrestur
08.10.2026