Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Þjónustustjóri á krabbameinsmiðstöð - ný staða

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

25.08.2026

Umsóknarfrestur

15.09.2026

Þjónustustjóri á krabbameinsmiðstöð - ný staða

Landspítali óskar eftir að ráða metnaðarfulla og framsýna hjúkrunarfræðinga í nýtt og mikilvægt starf þverfaglegs þjónustustjóra í krabbameinsþjónustu. Um er að ræða dagvinnu og er stefnt að því að ráðning hefjist 1. október 2026, eða eftir samkomulagi.

Um er að ræða lykilhlutverk í áframhaldandi uppbyggingu Krabbameinsmiðstöðvar Landspítala þar sem lögð er áhersla á samfellda, samhæfða og einstaklingsmiðaða þjónustu við sjúklinga frá greiningu til loka meðferðar. Fyrst í stað verður ráðið í tvö 60-100% störf í dagvinnu með áherslu á ákveðin krabbamein. Störfin tengjast m.a. innleiðingu krabbameinsáætlunar og þróun Krabbameinsmiðstöðvar Landspítala.

Um starfið

Þjónustustjóri hefur heildaryfirsýn yfir meðferðarferli sjúklinga og gegnir lykilhlutverki í að tryggja samfellda þjónustu þvert á svið spítalans og eftir atvikum við stofnanir utan Landspítala. Starfið felur í sér náið samstarf við þverfagleg teymi, stuðning við sjúklinga og aðstandendur og virka þátttöku í umbótastarfi.

Þjónustustjóri starfar þvert á klínískar einingar og er tengiliður sem tryggir að sjúklingar falli ekki á milli þjónustustiga.

Við bjóðum

Tækifæri til að móta nýtt og mikilvægt hlutverk innan krabbameinsmiðstöðvar

Fjölbreytt og krefjandi starf í öflugu þverfaglegu starfsumhverfi

Virka þátttöku í þróun, umbótum og framtíðarsýn þjónustunnar

Starf í teymi þar sem áhersla er á fagmennsku, samvinnu og nýsköpun

Starfið er ekki bundið við eina fasta starfsstöð en fer fram innan húsakynna Landspítala út frá verkefnum hverju sinni

Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur krabbameinsþjónustu.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hafa yfirumsjón með meðferðarferlum sjúklinga frá tilvísun til Landspítala, til loka meðferðar

  • Tryggja samfellda og tímanlega þjónustu

  • Þátttaka í þverfaglegum samráðsfundum og eftirfylgni vegna þeirra

  • Vera aðgengilegur tengiliður fyrir sjúklinga og aðstandendur

  • Samhæfa samskipti og upplýsingaflæði milli sjúklinga og meðferðaraðila

  • Fylgjast með gæðavísum og að meðferðarferlar séu virtir og biðtímaviðmið uppfyllt

  • Virk þátttaka í þróun þjónustuferla og í gæða- og umbótastarfi með áherslu á öryggi og upplifun sjúklinga

  • Hvetja til virkrar þátttöku sjúklinga í meðferð og styðja við fræðslu og ráðgjöf

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur

  • Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur

  • Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur

  • Þekking á þjónustu við krabbameinssjúklinga er kostur

  • Hæfni í klínísku mati, fræðslu og ráðgjöf

  • Reynsla af verkefna- og gæðastjórnun og nýtingu gagna

  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfileikar

  • Reynsla af þátttöku í þverfaglegri teymisvinnu heilbrigðisstétta er kostur

  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð og leiðtogahæfni

  • Góð tölvufærni og reynsla af notkun rafrænna kerfa

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5

Staðsetning: Eiríksgata 21, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 60-100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Halldóra Hálfdánardóttir

forstöðuhjúkrunarfræðingu

Tölvupóstur: hallhalf@landspitali.is

Sími: 698-1347

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Þjónustustjóri á krabbameinsmiðstöð - ný staða

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

25.08.2026

Umsóknarfrestur

15.09.2026